Fréttablaðið - 29.01.2011, Blaðsíða 2
2 29. janúar 2011 LAUGARDAGUR
Halldór, mun forritið héðan í
frá heita Örmjúk skrifstofa?
Nei, skrifstofan verður örugglega
mjúk og hlý með íslensku viðmóti,
en vörumerki eru alla jafna ekki
þýdd og haldast því frosin.
Halldór Jörgensson er framkvæmdastjóri
Microsoft á Íslandi sem býður nú upp á
íslenskt viðmót fyrir Microsoft Office.
FÓLK Hreggviður Jónsson, fyrr-
verandi alþingismaður, skorar á
borgarstjórn að heiðra minningu
þeirra lögregluþjóna sem tóku
þátt í átökunum á Austurvelli 9.
nóvember 1932, í svokölluðum
Gúttóslag. „Þeir björguðu ekki
aðeins bæjarstjórninni, heldur
lýðræðinu á Íslandi með hug-
rekki og staðfestu sinni,“ segir í
áskorun Hreggviðs. „Sú meðferð,
sem þessir hraustu og hugrökku
lögregluþjónar urðu fyrir er ekki
bjóðandi heiðarlegum mönnum,“
segir Hregggviður, sem leggur
til að þegar sjötíu ár verða liðin
frá Gúttóslagnum verði afhjúpuð
minningartafla með nöfnun lög-
regluþjónanna í Ráðhúsinu. - gar
Tillaga fyrrverandi þingmanns:
Borgin minnist
lögregluþjóna
FÓLK „Ég bjóst við bréfi í dag
þannig að ég varð fyrir vonbrigð-
um. Ég held í vonina að bréfið
hafi farið í póst í dag, en ef á að
segja alveg eins og er þá held ég
að málið sé enn í vinnslu,“ sagði
Jussanam da Silva, brasilíska
söngkonan sem bjóst við að fá í
dag svar við umsókn um dvalar-
leyfi á Íslandi eins og fram kom í
viðtali í Fréttablaðinu í gær.
Samkvæmt upplýsingum frá
innanríkisráðuneytinu er málið
enn í vinnslu og ekki hægt að
fullyrða hvenær afgreiðslu þess
lýkur. Ráðuneytið segir það mis-
skilning hjá da Silva að afgreiðslu-
tími beiðnarinnar hafi runnið út
í gær.
Jussanam da Silva fékk hvorki
atvinnu- né dvalarleyfi eftir að
hún skildi við íslenskan eigin-
mann sinn að borði og sæng síð-
asta vor. Hún vísaði þeim úrskurði
til dómsmála- og mannréttinda-
ráðuneytisins, sem varð að innan-
ríkisráðuneyti um áramót. - sbt
Ekkert svar frá ráðuneyti:
Vonbrigði segir
Jussanam
STANGVEIÐI Laxveiði ársins 2011
er hafin í ánni Helmsdale í Skot-
landi. Þar byrjuðu heimamenn
og gestir veiðarnir fyrir rúmum
tveimur vikum með mikilli
viðhöfn.
Meðal boðsgesta við opnun-
ina var laxverndarfrömuðurinn
Orri Vigfússon. Áður en veiðarn-
ar hófust skemmtu menn sér árla
morguns við hefðbundinn sekkja-
pípuleik og skoska dansa. Veiði-
maðurinn Richard Bain landaði
síðan einum níu punda laxi. Telja
kunnugir það vita á gott fyrir
veiðitímabilið.
Michael Wigan, talsmaður
Helmsdale, sagði nokkuð hug-
rekki þurfa til að veiða í ánni jan-
úar. „En fiskurinn á fyrsta degi
sýnir að það borgar sig. Við skul-
um vona að þetta verði frábært
veiðitímabil,“ er haft eftir Wigan
í frétt frá NASF, verndarsjóði
villtra laxa í Norður-Atlantshafi,
sem Orri stýrir.
Orri segir við Fréttablaðið að
opnun Helmsadale dragi jafnan
marga að. Hann nýtti áhugann
til að koma verndarsjónarmið-
um á framfæri. „Við vorum líka
í sjónvarpi og í blöðunum þarna
því við erum að berjast fyrir því
Skotar hætti sínum netaveiðum
laxi í sjó og færi eldisiðnaðinn í
betra og sjálfbært horf,“ segir
hann. Í blaðinu The Press and
Journal er haft eftir Orra að þótt
mikil framför hafi orðið í þess-
um efnum í Skotlandi sé þar enn
langur vegur ófarinn.
Lífríkið í Helmsdale hefur þá
sérstöðu að njóta vatnsmiðlunar
frá stærsta uppistöðulóni Skot-
lands. Ef frost ógnar hrognum
í jaðri árinnar er hægt að auka
vatnsstreymið til að vernda þau.
Og í þurrkum er hægt að auka
vatnsstreymið til að auðvelda laxi
við ósana að ganga í ána áður en
hann verður sel að bráð.
Þess má geta að laxveiði á
Íslandi hefst ekki fyrr en í júní.
gar@frettabladid.is
Laxveiðin hefst með
lúðraþyt í Skotlandi
Orri Vigfússon, forsvarsmaður verndarsjóðs villtra laxastofna við Norður-Atl-
antshaf, var viðstaddur þegar veiðar hófust í ánni Helmsdale í Skotlandi í síð-
ustu viku. Laxveiði á Íslandi hefst ekki fyrr en eftir fjóra og hálfan mánuð.
ORRI VIGFÚSSON Við opnun Helmsdale
fékk Orri tækifæri til að taka fyrstu köst
sín með flugustöngina á þessu ári. Annar
veiðimaður landaði níu punda laxi.
MYND/GLYN SATTERLEY
STJÓRNSÝSLA Ríkisstjórnin hyggst
skipa starfshóp til að yfirfara
hvort jafnræði og gagnsæi við
sölu á fyrirtækjum eða hlutum í
fyrirtækjum í beinni eða óbeinni
eigu ríkisins sé tryggt nægilega
í lögum og reglum. Eru þetta við-
brögð við ábendingum umboðs-
manns Alþingis, sem frá því eftir
hrun hefur lýst áhyggjum af því
að stjórnsýslan í þessum efnum sé
ekki í samræmi við lög.
Í nýlegu bréfi frá umboðs-
manni segir að kvartanir hafi
borist á meðferð Seðlabankans á
vátryggingarfélagi, sem er Sjóvá.
Starfshópurinn á einnig að kanna
hvort ástæða sé til að endurskoða
reglur um lífeyrissjóði til þess
að tryggja að sömu grundvallar-
reglur gildi um ráðstöfun eigna á
vegum sjóðanna og hjá ríkinu. - gar
Brugðist við umboðsmanni:
Reglur um sölu
eigna ríkisins
ÓLAFUR ÞÓR
HAUKSSON
MARSERAÐ Í LAXVEIÐINA Það er stíll yfir opnun-
inni í Helmsdale. MYND/GLYN SATTERLEY
SPURNING DAGSINS
HÆKKUM AFSLÁTTINN, ALLT AÐ
80%
AFSLÁTTUR
Sími 568 9400 KRINGLUNNI
Útsölulok
LÖGREGLUMÁL Hæstiréttur
Lúxem borgar hefur úrskurðað
að lögreglu-
yfirvöldum í
Lúxemborg
beri að afhenda
sérstökum
saksóknara á
Íslandi öll hald-
lögð gögn eftir
húsleit í Banque
Havilland í
febrúar í fyrra.
Þetta kom fram
í fréttum Stöðv-
ar 2 í gærkvöld. Gögnin tengjast
rannsókn á meintri markaðsmis-
notkun Kaupþings og grunsemd-
um um auðgunarbrot. Nítján
aðilar með tengsl við Banque
Havilland höfðu kært afhendingu
gagnanna, sem nú munu fljótlega
berast til Íslands. Þau eru talin
hafa verulega þýðingu fyrir rann-
sókn sérstaks saksóknara. - gar
Rannsókn á Kaupþingi:
Fá bankagögn
frá Lúxemborg
BJÖRGUN „Ég er afar þakklátur
björgunarfólkinu, sem sýndi
mikla fagmennsku í alla staði,“
segir Peter Bollmann, fimmtug-
ur Þjóðverji, sem bjargað var
ofan af Eyjafjallajökli í gær-
morgun.
Hann hafði orðið viðskila við
ferðafélaga sína uppi við gíginn,
gekk frá þeim um það bil 50
metra niður og hugðist bíða þar
þangað til þeir kæmu. Þá versn-
aði skyggnið svo hann hélt aftur
upp til þeirra, en þá fórust þeir
á mis því þeir voru lagðir af stað
niður.
„Ég ákvað að halda kyrru fyrir
þangað til veðrið skánaði og gróf
mig í fönn.“
Þetta var síðdegis á miðviku-
dag. Hjálpin barst í gærmorgun
þegar hann hafði dvalist tvær
nætur á staðnum. Bollmann bar
sig þó vel og taldi sig hafa verið
færan um að halda út í tvær eða
jafnvel þrjár nætur í viðbót.
Hann var hins vegar vel útbú-
inn og segist aldrei hafa óttast
um líf sitt. „Ég vissi alveg hvað
ég var að gera.“
Á fimmtudag tókst honum
að hringja í félaga sinn og kom
skilaboðum inn á talhólf um að
hann ætlaði að bíða af sér veðrið.
Símann missti hann síðan niður
í sprungu, en leitarmenn gátu
engu að síður notað hann til að
miða út staðsetningu hans.
Bollmann og félagar hans tveir
eru allir vanir fjallamenn. Þeir
stefna ótrauðir á fleiri jöklaferð-
ir hér á landi og ætla að halda
á Vatnajökul á næstu dögum ef
veður leyfir. - gb
Þýski fjallagarpurinn Peter Bollmann gróf sig í fönn á Eyjafjallajökli:
Óttaðist aldrei um líf sitt
UMFANGSMIKIL LEIT Um 150 manns
tóku þátt í leitinni að Peter Bollmann.
MYND/FREYR INGI BJÖRNSSON
FISKVEIÐAR Færeyskur vísinda-
maður, Hans Ellefsen, segir að
sameiginlegar tekjur Íslendinga,
Færeyinga og Norðmanna af upp-
sjávarveiðum væru meiri ef þessi
þrjú ríki myndu gera út sameigin-
legan uppsjávarflota. Hann hefur
sent frá sér skýrslu um rannsóknir
sínar, þar sem hann skoðar hvaða
hag ríkin gætu haft af slíku fyr-
irkomulagi í veiðum á síld, loðnu,
kolmunna og makríl. Þannig segir
samningsstöðu ríkjanna gagnvart
ESB hafa verið mun sterkari í
deilunni um makrílkvóta. - gb
Færeyskur vísindamaður:
Leggur til sam-
eiginlegan flota
ORKUVEITAN „Það þarf ákveðinn
vilja til að lesa ákveðna meiningu
út úr þessu viðtali við mig aðra
en þá að ég er fyrst og fremst
að velta því upp að það er ekkert
auðséð hvaða kostur er bestur til
þess að reka orkufyrirtæki,“ segir
Haraldur Flosi Tryggvason, stjórn-
arformaður Orkuveitu Reykjavík-
ur, um viðbrögð minnihlutans í
stjórn Orkuveitunnar við viðtali í
Morgunblaðinu um framtíð fyrir-
tækisins.
„Ég vil nú flokka þetta undir
heilbrigðar vangaveltur stjórnar-
formanns um það hvernig hag
fyrirtækisins
er best borgið,“
segir Harald-
ur Flosi. Hann
þvertekur fyrir
það að hann sé
að boða algjöra
einkavæðingu
Orkuveitunnar.
Hugsanlega
megi þó skoða
að sumir hlutar í
starfsemi fyrir-
tækisins eigi heima nær almanna-
þjónustu en aðrir hlutir eigi ef til
vill heima í einkavæðingu.
„Ég hef nefnt sem dæmi virkj-
anaframkvæmdir í þágu stóriðju
og annað slíkt. Ég held að það þurfi
að skoða hvort það sé ásættanlegt
að það sé eitthvað sem sé gert á
ábyrgð borgaranna endalaust á
meðan að aðrir þættir eins og
veituframkvæmdir og annað slíkt
ættu kannski bara best heima nær
sveitarfélögunum,“ segir Haraldur
Flosi.
Hann bendir þó á að stefna
stjórnar Orkuveitunnar, í það
minnsta meirihluta hennar, sé
skýr. Ekki standi til að einkavæða
Orkuveituna. - jhh
Haraldur Flosi Tryggvason, stjórnarformaður OR, um framtíð fyrirtækisins:
Vill fordómalausa umræðu
HARALDUR FLOSI
TRYGGVASON