Fréttablaðið - 29.01.2011, Qupperneq 10
10 29. janúar 2011 LAUGARDAGUR
UMHVERFISMÁL Sorpbrennsla á
Kirkjubæjarklaustri fer enn fram
á skólatíma en hefur verið seinkað
um fjóra klukkutíma. Sveitarstjóri
segir það á misskilningi byggt að
alfarið yrði hætt að brenna sorp
yfir skóladaginn.
Fréttablaðið greindi frá því 14.
janúar að sorpbrennslan á staðn-
um, íþróttahúsið, sundlaugin, og
grunnskólinn stæðu vegg í vegg.
Mælingar á díoxíni árið 2007 sýndu
að eitrið var langt yfir viðmiðunar-
mörkum í útblæstri brennslunnar
og önnur mengun hefur jafnframt
mælst yfir mörkum.
Oddur Bjarni Thorarensen,
byggi ngaverkfræði ngur á
Klaustri, ákvað að halda börn-
unum sínum heima vegna meng-
unar frá sorpbrennslunni, eins
og Fréttablaðið sagði frá á þeim
tíma. Hann ákvað hins vegar að
senda börnin aftur í skólann í
þeirri trú að sorpbrennslu yrði
hætt á skólatíma. Byggði hann það
á bréfi sveitar stjóra til foreldra
og annarra íbúa um breytingar á
starfsemi sorpbrennslunnar.
„Við sendum börnin okkar í
skólann síðastliðinn mánudag
eftir bréf sveitarstjóra þar sem
lofað var að ekki yrði brennt á
skólatíma,“ segir Oddur. „Við sótt-
um hins vegar börnin í hádeginu
á miðvikudag þegar við vissum
hvers kyns var. Við eigum enn
eftir að ráða ráðum okkar með
framhaldið.“ Oddur og eiginkona
hans hafa ekki útilokað að flytja
frá Klaustri vegna mengunar frá
sorpbrennslunni.
Eygló Kristjánsdóttir, sveitar-
stjóri Skaftárhrepps, segir að ekk-
ert hafi verið gefið út um klukkan
hvað yrði byrjað að brenna. „Ég
var beðin um að athuga með að
seinka brennslutíma og talaði við
Íslenska gámafélagið um það og
þeir samþykktu. Þeirra tillaga var
að byrja brennslu eftir hádegi og
mér fannst það vera góð leið til að
koma til móts við þær raddir sem
hafa verið hvað háværastar.“
Kjartan Kjartansson, skóla-
stjóri í Kirkjubæjarskóla, fagnaði
því þegar fyrir lá að brennslutíma
sorps yrði breytt. Taldi hann afar
jákvætt að „börnin á Klaustri væru
látin njóta vafans“, eins og hann
orðaði það í viðtali við Fréttablað-
ið á mánudag. Sama orðalag not-
aði Eygló sveitarstjóri í bréfi til
Fréttablaðsins vegna málsins.
Oddur telur að kostnaður við að
seinka brennslu fram yfir skóla-
tíma hafi komið í veg fyrir að svo
langt yrði gengið en Eygló segir
það rangt. „Við höfum ekki enn
skoðað hver kostnaðaraukning-
in er við að seinka brennslunni
alveg til þess tíma sem skóla lýkur
á daginn, svo það er ekki rétt að
sveitarstjórn hafi ekki verið tilbú-
in að bera þann aukakostnað. Það
hefur einfaldlega ekki komið inn
á okkar borð ennþá.“
svavar@frettabladid.is
Börnin njóta vafans
hálfan skóladaginn
Sveitarstjóri segir það hafa verið á misskilningi byggt að öll brennsla sorps á
Kirkjubæjarklaustri yrði utan skólatíma. Ekki er brennt fyrir hádegi. Íbúi á
Klaustri hefur á ný tekið börn sín úr grunnskólanum vegna sorpbrennslunnar.
KIRKJUBÆJARKLAUSTUR Staðsetning sorpbrennslunnar við skóla og leiksvæði barna
er gagnrýnd. Nýrra mengunarmælinga er beðið. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
VETRARUMFERÐ Nagladekkjanotkun
borgarbúa hefur dregist saman á
síðustu árum. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
UMFERÐ Hlutfall negldra dekkja
á bílum í Reykjavík mælist nú
32 prósent, en var 42 prósent í
janúar árið 2008.
„Þetta eru ánægjulegar frétt-
ir þar sem Reykvíkingar geta
aukið loftgæði og bætt hljóðvist-
ina í borginni með því að velja
önnur dekk en nagladekk,“ segir
Eygerður Margrétardóttir, fram-
kvæmdastýra Staðardagskrár 21
í Reykjavík.
Reykjavíkurborg hefur undan-
farin ár hvatt ökumenn til að
velja önnur vetrardekk en þau
negldu þar sem þau valda hávaða-
og loftmengun og hækka veru-
lega kostnað við viðhald gatna. - sv
Nagladekk í Reykjavík:
Notkun dregst
saman um 10%
ORKUMÁL Beinn kostnaður ríkis-
sjóðs af eignarnámi hlutar Magma
í HS orku yrði „ekki meiri en sem
nemur árshagnaði af rekstri HS
orku,“ segir í yfirlýsingu sem
Björk Guðmundsdóttir, Jón Þóris-
son og Oddný Eir Ævarsdóttir und-
irrita fyrir hönd hópsins sem stóð
að baki undirskriftasöfnun á vef-
síðunni orkuaudlindir.is. Afborg-
anir yfirtekinna lána megi einnig
greiða af hagnaði fyrirtækisins.
Krafa um eignarnám sé enn í
fullu gildi: „Eignarnám er senni-
lega ódýrt í samanburði við tap
þjóðarbúsins ef eignarhald verður
óbreytt.“ - pg
Orkuaudlindir.is:
Árshagnaður
HS orku greiðir
eignarnám
EIGANDINN Félag Pálma Haraldssonar
lánaði flugfélögunum Iceland Express
og Astreusi 3,5 milljarða árið 2009. Það
er jafn mikið og skiptastjóri Fons vill fá
til baka. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
VIÐSKIPTI Fengur, félag Pálma
Haraldssonar sem heldur utan um
eignarhluti hans í flugfélögunum
Iceland Express og Astreus í Bret-
landi, hagnaðist um 588 milljónir
króna árið 2009.
Fengur keypti flugfélögin út úr
eignarhaldsfélaginu Fons, félagi
Pálma og Jóhannesar Kristinsson-
ar, síðla árs 2008. Fons var tekið
til gjaldþrotaskipta vorið 2009.
Astreus var selt úr félaginu á 9,2
milljónir króna og segir skipta-
stjóri þrotabúsins það of lága upp-
hæð. Í Viðskiptablaðinu í vikunni
kemur fram að hann geri kröfu
um endurgreiðslu á raunvirði upp
á 3,5 milljarða króna. - jab
Hagnast um 600 milljónir:
Skiptastjóri vill
3,5 milljarða
islandsbanki@islandsbanki.is
www.islandsbanki.is
Sími 440 4900
Það borgar sig að
byrja strax að spara
Það getur munað miklu að
eiga við bótar líf eyris sparnað við
starfs lok. Því fyrr sem þú byrjar
að spara og safna, því betra – og
inn eign þín verður mun meiri
við starfslok.
Gakktu strax frá sparnaðinum
hjá eigna- og lífeyrisþjónustu
Íslandsbanka á Kirkjusandi
eða í næsta útibúi.
Lífeyrissparnaður
LESTARFYLLI Vart verður séð að fleiri
farþegar geti ferðast með þessari
lest, sem var á ferðinni í Bangladess
í vikunni. Þeir eiga líf sitt undir því að
lestarstjórinn fari sér að engu óðslega.
NORDICPHOTOS/AFP
Við sendum börnin
okkar í skólann síð-
astliðinn mánudag eftir bréf
sveitarstjóra þar sem lofað
var að ekki yrði brennt á
skólatíma …
ODDUR BJARNI THORARENSEN
ÍBÚI Á KLAUSTRI