Fréttablaðið - 29.01.2011, Blaðsíða 24

Fréttablaðið - 29.01.2011, Blaðsíða 24
24 29. janúar 2011 LAUGARDAGUR H vort sem fólk trúir því eða ekki finnst mér óþægilegt að horfa á sjálfan mig í sjónvarpinu. Þetta segja auð- vitað allir sjónvarpsmenn, líklega vegna þess að þeir halda að það lýsi einhverri hógværð, en ég er alls ekkert hógvær og hef aldrei verið. Svona er þetta bara og ég veit ekki af hverju, en vonandi venst þetta,“ segir skemmtikrafturinn, eftir- herman, rithöfundurinn og nú síð- ast sjónvarpsmaðurinn Sólmundur Hólm Sólmundarson, sem er annar liðsstjóra skemmti-/spurningaþátt- arins HA? sem hóf göngu sína á Skjá Einum um síðustu helgi. Nýi þátturinn er frábrugðinn flestum íslenskum forverum hans að því leyti að umræður og vanga- veltur í kjölfar spurninganna skipta meira máli en kórrétt svör. Slík dag- skrárgerð hefur meðal annars lengi notið vinsælda í Bretlandi, meðal annars í þáttaröðum á borð við QI, Never Mind the Buzzcocks og Have I Got News for You, og segir Sól- mundur ekkert launungarmál að þaðan séu fyrirmyndirnar komnar. Hinn liðsstjórinn er leikkonan Edda Björg Eyjólfsdóttir og annar leikari, Jóhann G. Jóhannsson, er umsjón- armaður, en höfundur spurninga er sagnfræðingurinn Stefán Pálsson. Sólmundur lætur vel af sjón- varpsstarfinu, en það er þó aðeins hluti af starfi hans í þágu skemmt- anabransans. Samhliða treður hann upp á mannamótum með gítar, eftir- hermur og misgróft grín um daginn og veginn að vopni og hefur hann á stuttum tíma orðið einn eftirsóttasti skemmtikrafturinn til slíkrar iðju á landinu. Þá hyggst Sólmundur fylgja eftir fyrstu bók sinni, ævisögu Gylfa Ægissonar sem kom út árið 2009, á árinu, svo fátt eitt sé nefnt. „Ég er mjög þakklátur fyrir að geta þetta og veit það núna að í fram- tíðinni vil ég vinna við að skemmta og skrifa. Ég verð að minnsta kosti ekki endurskoðandi eða fjármála- stjóri, nema þá í mesta lagi yfir sjálf- um mér,“ segir hinn 27 ára gamli skemmtikraftur ákveðinn. Bestur í búningsklefanum Hólm er ekki ættarnafn Sólmundar eins og margir kynnu að halda held- ur millinafn, en hann var skírður í höfuðið á foreldrum sínum, Sól- mundi og Hólmfríði. „Bróðir hans pabba heldur því fram að mér hafi verið gefið þetta nafn með það fyrir augum að bjarga hjónabandi for- eldra minna. En samkvæmt honum kom svo í ljós hversu krakkinn var ljótur og þá hrundi allt. Kannski er eitthvað til í þessu,“ útskýrir Sólmundur og hlær. Hann fæddist á Fjórðungssjúkra- húsinu á Selfossi en ólst upp í Hvera- gerði til fjögurra ára aldurs, þegar hann flutti ásamt móður sinni í Langholtshverfið í Reykjavík í kjöl- far skilnaðar foreldranna. Nú búa nánast allir ættingjar hans á þessum slóðum og eðli málsins samkvæmt er skemmtikrafturinn tíður gestur þar syðra. Hann tekur fram að þrátt fyrir ræturnar hafi hann einungis einu sinni aflitað á sér hárið, en það var fyrir mörgum árum og aðeins í þeim tilgangi að leyfa vinkonu hans, sem var hárgreiðslunemi, að æfa sig á honum. „Þegar ég fékk bílprófið fór ég alltaf til Hveragerðis og keyrði þar um, en þar þótti mjög töff að vera á rúntinum á þessum árum,“ Hef aldrei verið hógvær Skemmtikrafturinn, eftirherman og rithöf- undurinn Sólmundur Hólm Sólmundarson er liðsstjóri í nýjum spurningaskemmti- þætti á Skjá Einum og hyggst gefa út bók fyrir næstu jól. Kjartan Guð- mundsson ræddi við þúsundþjalasmiðinn yfir kaffibolla. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA KALDHÆÐNI ER LYKILLINN „Það besta við íslenska áhorfendur er að þeir ná kaldhæðni. Þeim hefur verið kennt að skilja það sem sagt er undir rós,“ segir Sólmundur. ILVA Korputorgi, Blikastaðavegi 2-8, 112 Reykjavík, sími 522 4500 www.ilva.is mánudaga - föstudaga 11-18:30, laugardaga 10-18, sunnudaga 12-18 sendum um allt land Bjóðum uppá vaxtalaust lán til 6 mánaða ÚTSALAN ER Í FULLUM GANGI 25-60% AFSLÁTT UR
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.