Fréttablaðið - 29.01.2011, Síða 29
fjölskyldan
[ SÉRBLAÐ FRÉTTABLAÐSINS UM FJÖLSKYLDUNA ]
Sindri er yndislegur ljúflingur og gleðigjafi, húmoristi, stríð-inn og erfiður,“ segir Brynd-ís Ploder, stuðningsfulltrúi
í Öskjuhlíðarskóla og stuðnings-
foreldri 13 ára frænda síns, Sindra
Ploder sem er með Downs-heilkenni
og vott af einhverfu.
„Sindri kom fyrst til mín þriggja
ára og auðvitað mikil viðbrigði fyrir
hann að koma inn á heimili sem hann
þekkti lítið sem ekkert. Fyrstu tvær
næturnar stóð hann við útidyrnar
og grét, en við urðum að láta þetta
ganga því álag á foreldra hans og
eldri bróður var mikið og nauðsyn
að sá eldri yrði ekki útundan öllum
stundum. Eftir þessa fyrstu helgi
var Sindri svo alltaf til í að koma
og fljótlega vildi hann ekkert frek-
ar fara heim aftur, því honum finnst
voða gott að njóta einveru með mér,“
segir Bryndís sem fær Sindra til sín
eina helgi í mánuði.
Börn sem fæðast með Downs-
heilkenni fæðast gjarnan með
hjartagalla en Sindri er hreystin
uppmáluð. „Börn með Downs fylgja
oft kúrfunni framan af bernsk-
unni en standa svo í stað fram á
janúar 2011
FRAMHALD Á SÍÐU 4
FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Innsýn í hulinn heim fatlaðra
Það er dýrmæt og ljúf
lífsreynsla að gerast stuðn-
ingsforeldri og opna hjarta
sitt fyrir þeim sem minna
mega sín og þurfa á ást og
stuðningi að halda.
Tónlistaruppeldi
Helga Rut Guðmundsdóttir heldur tónlistarnám-
skeið fyrir ungabörn og foreldra í Tónagulli. SÍÐA 6
Býr til stóra og
smáa ættarhringi
Albert Eiríksson hefur stofnað fyrirtæki
í kringum ættarhringina sína. SÍÐA 2
ÚTSALA ÖLL RAFTÆKI Í ELDHÚS OG ÞVOTTAHÚS Á ÚTSÖLU
Sýningareintök og útlitsgallað með miklum afslætti
Ofnar, helluborð og háfar með allt að 50% afsl.
Candy þvottavélar - verð frá kr. 79.990
Blomberg uppþvottavélar - verð frá kr. 89.990
Severin smátæki með allt að 33% afslætti og margt fleira
Sjálfvirkar Saeco kaffivélar frá kr. 49.990
SÍÐUSTU
DAGAR