Fréttablaðið - 29.01.2011, Qupperneq 41
Actavis Reykjavíkurvegi 76-78 220 Hafnarfirði s 550 3300 f 550 3301 @ actavis@actavis.is w www.actavis.is
Fjölbreytt störf í boði
hjá Actavis á Íslandi
Nánari upplýsingar veitir Jenný Sif Steingrímsdóttir, jsteingrimsdottir@actavis.is.
Umsóknir óskast fylltar út á www.actavis.is, undir Störf í boði fyrir 6. febrúar nk.
Sérfræðingur í kerfisgildingum
Starfið tilheyrir gæðastjórnunardeild Actavis hf. Megin hlutverk deildarinnar er að tryggja að viðeigandi gæðakerfi séu til staðar hjá Actavis á Íslandi og að þau
fullnægi þeim kröfum sem til þeirra eru gerðar. Starfið felur í sér talsverð samskipti við aðrar deildir Actavis á Íslandi. Starfsmenn gæðastjórnunardeildar eru 18.
Helstu verkefni:
Gildingar á tækjum og tölvukerfum
Yfirlestur og samþykkt gagna tengdum kerfisgildingum
Skráning í gagnagrunna og yfirlestur og samþykki á skjölum
Svara fyrirspurnum
Þátttaka í gerð áhættumata
Viðhald og gerð skriflegra leiðbeininga
Þátttaka í úrbótaverkefnum
Við leitum að einstaklingi:
með tæknimenntun eða menntun á sviði raunvísinda
með góða ensku- og tölvukunnáttu
sem tileinkar sér hratt ný vinnubrögð og þekkingu
sem sýnir nákvæm og öguð vinnubrögð
sem sýnir frumkvæði og getur unnið sjálfstætt
Starfsmaður í móttöku Actavis á Íslandi
Actavis á Íslandi leitar að starfsmanni í móttöku fyrirtækisins að Dalshrauni 1 og Reykjavíkurvegi 76 – 78. Vinnutími er kl. 8-16 og það er kostur ef viðkomandi
getur hafið störf sem fyrst.
Helstu verkefni:
Símavarsla fyrir innlend og erlend símtöl
Móttaka viðskiptavina og gesta sem koma í móttökur
Afgreiðsla hraðsendinga / pósts sem koma þarf úr húsi eða til skila innanhúss
Móttaka og dreifing gagna innanhúss
Aðstoð við veitingar í fundarherbergjum
Aðstoð við flutning á gögnum fyrirtækisins
Önnur tilfallandi verkefni
Við leitum að einstaklingi:
með reynsla af sambærilegum störfum (kostur)
með góða enskukunnáttu
með almenna tölvukunnáttu
með ríka þjónustulund og góða samkskiptahæfni
Deildarstjóri skráningadeildar
Starf deildarstjóra skráningadeildar þróunarsviðs Actavis á Íslandi er laust til umsóknar. Hlutverk deildarinnar er að taka saman skráningargögn fyrir lyf þróuð
á Íslandi og fylgja slíkum skráningum eftir með því að svara athugasemdum lyfjayfirvalda og viðhalda skráningagögnum eftir að markaðsleyfi hefur fengist.
Deildarstjóri ber ábyrgð á faglegu starfi og starfsmannahaldi deildarinnar, en starfsmenn deildarinnar eru 18. Deildarstjóri er í miklum samskiptum við starfsfólk
Actavis bæði hérlendis og erlendis.
Helstu verkefni deildarinnar eru eftirfarandi:
Samantekt skráningargagna fyrir ný lyf til markaðssetningar
Svara athugasemdum og annmarkabréfum lyfjayfirvalda í Evrópu og víðar
Viðhalda skráningargögnum eftir að markaðsleyfi hefur fengist
Taka þátt í þróunarferlinu og tryggja að lyfin muni uppfylla viðeigandi
skráningarkröfur
Menntunar- og hæfniskröfur:
Háskólamenntun á sviði heilbrigðis-, líf- eða raunvísinda
Reynsla og þekking á lyfjaskráningum
Stjórnunarhæfileikar og haldgóð stjórnunarreynsla
Mjög góð samskiptahæfni
Ákveðni, frumkvæði og þor, ásamt skipulögðum og
öguðum vinnubrögðum
Deildarstjóri gæðaeftirlitsdeildar
Í tengslum við breytingar á skipulagi gæðasviðs verður gæðaeftirlitsdeild ein af fjórum deildum gæðasviðs Actavis hf. Megin hlutverk deildarinnar er að sinna
gæðaeftirliti með framleiðsluvörum Actavis á Íslandi. Mikil samskipti eru við aðrar deildir sviðsins sem og önnur svið Actavis á Íslandi og þá sérstaklega framleiðslu-,
vörustjórnunar- og þróunarsvið. Starfsmenn í gæðaeftirlitsdeild verða 36 og ber deildarstjóri ábyrgð á rekstri og starfsmannahaldi deildarinnar.
Helstu verkefni deildarinnar eru eftirfarandi:
Samþykkt forskrifta og lotuskráa fyrir framleiðslu og rannsókn
Rýni og samþykkt forskrifta og rannsóknarskráa fyrir pökkunarefni
Sýnataka og utanumhald sýna
Ábyrgð og umsjón á mikilvægum gæðaskjölum
Mat á frávikum og utanmarkaniðurstöðum
Gerð og viðhald skriflegra leiðbeininga
Þjálfun starfsmanna
Þátttaka í úttektum og í óreglubundnu eftirliti
Menntunar- og hæfniskröfur:
Háskólamenntun á sviði raunvísinda
Stjórnunarhæfileikar og haldgóð stjórnunarreynsla
Reynsla og þekking á framleiðslu- og gæðaferlum
Mjög góð samskiptahæfni
Frumkvæði og sjálfstæði ásamt skipulögðum og öguðum
vinnubrögðum
Árangursmiðað viðhorf, ferlahugsun og drifkraftur