Fréttablaðið - 29.01.2011, Page 50
6 fjölskyldan
tónlist
hlustum og njótum ...
Þegar Helga Rut Guðmunds-
dóttir tónmenntakennari
kynntist tónlistarnámskeið-
um fyrir ungabörn opnaðist
henni nýr heimur. Hún hóf
að halda slík námskeið árið
2004 og þau njóta vin-
sælda.
Við fæðumst öll með þörf fyrir tónlist,“ segir Helga Rut Guðmundsdóttir, doktor í tónmenntafræðum, sem
í fyrirtæki sínu Tónagulli býður
upp á tónlistarnámskeið fyrir unga-
börn. Þar mæta þau með foreldrum
og jafnvel eldri systkinum.
„Það er mjög skemmtilegt að
vera með lítil kríli í hópi,“ segir
Helga Rut brosandi. „Markmiðið
með námskeiðunum er að foreldr-
arnir tileinki sér tónlistaruppeldi
frá byrjun. Að svo miklu leyti sem
vitað er hvernig heilinn vinnur
fyrstu mánuði ævinnar er ljóst að
orðaleikir, vísur og kroppaþulur
örva þroska barna á einstakan
hátt.“
Helga var í doktorsnámi í tón-
listarmenntunarfræðum og búsett
í Bandaríkjunum þegar hún sá
auglýst tónlistarnámskeið fyrir
börn á aldrinum 0-9 mánaða og
ákvað að fara þangað með yngri
telpuna sína, sem var þá nokkurra
mánaða. „Ég fór bara af forvitni
því sjálf hafði ég kennt litlum
börnum en aldrei svona litlum og
fannst það í fyrstu svolítið galin
hugmynd. En þarna smitaðist ég.
Hélt að ég væri súpertónlistar-
mamma, kennaramenntuð í tónlist
og kunni ótal lög og leiki en þetta
var sérstök upplifun fyrir okkur
mæðgur báðar.
Þegar Helga Rut kom heim fannst
henni að hún yrði að þróa aðferðina
þannig að hún hentaði íslenskum
veruleika og tók tvö ár í að melta
hugmyndina. „Það er til fullt af
erlendu efni sem hægt er staðfæra
en ég vildi heldur leita í íslenskan
menningararf, Klappa saman lófun-
um, Ríðum heim til Hóla, Vindum,
vindum vefjum band og fleira gam-
alt og gott. Hef meðal annars verið
að endurvekja efni sem var nánast
gleymt,“ lýsir hún.
Hún kveðst lítið hafa þurft að
auglýsa námskeiðin. Vinsæld-
irnar sjái um það. Í kennslunni
styðst hún við geisladisk og bók,
hvort tveggja gefið út af Tónag-
ulli. „Geisladiskurinn er vinsæll,
lágstemmdur og látlaus, með ein-
földum hljóðum og smekklegum
útsetningum. Þar er mikill söng-
ur og líka þulur sem hafa heilm-
ikið gildi. Ég fæ stundum til mín
foreldra af erlendu bergi brotna
sem finnst gaman að fá þennan
íslenska arf í æð en ég hvet þá
líka til að vera með barnadiska á
fóninum með tungumáli uppruna-
landsins.“
Meira er hægt að fræðast um
Tónagull á heimasíðu þess: www.
tonagull.is - gun
Vísur, leikir og
kroppaþulur
Doktorinn „Ég fór bara af forvitni
því sjálf hafði ég kennt börnum en
ekki svona litlum,“ segir Helga Rut
um smábarnanámskeiðið sem hún
fór á með dóttur sína.
FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN KARLSSON
Í Tónagulli Foreldrar og
börn finna taktinn saman.
MYND/TÓNAGULL
KRÚTTAKÓRINN er hluti kórskóla Langholtskirkju og er hann ætlaður börnum frá
fjögurra til sex ára. Krúttakórinn æfir á miðvikudögum undir stjórn Huldu Daggar Proppé
og Þóru Björnsdóttur, söngkvenna og söngkennara. Sjá www.kirkjan.is
Íslendingaslóðir í Ameríku
Sumarferðir 2011
Ferð 1: Amish og Íslendingar: 17. - 26. maí
Flug með Icelandair til Minneapolis. Átta daga ferð um nýlendur
Amish í Minnesota og Iowa og Íslendinga í Minnesota.
Ferð 2: Vesturströnd: 29.ágúst – 7.september
Flug með Icelandair til Seattle. Afkomendur vesturfara heimsóttir í Seattle, Blaine,
Vancouver og Victoria. Skoðunarferð til Whisler, í Butchart Gardens og víðar.
Nánari upplýsingar hjá Jónasi Þór í síma 861-1046 eða
jonas.thor1@gmail.com
Amish í Iowa Whistler í Kanada
hollur kostur á 5 mín.
Gríms fiskibollur