Fréttablaðið - 29.01.2011, Síða 54
30 29. janúar 2011 LAUGARDAGUR
1 Eldsnemma, klukkan 9.30, skonsast ég í gegnum snjó-flygsurnar við 8. breiðgötu frá lestinni. Ég er svo kát
með snjóinn að mér er skapi næst að dansa ballett – ég er
alveg ein um það. Ken vill byrja aftur með Barbie eins og
sést á skiltinu og hér notar fólk regnhlífar í snjókomu!
2 Skólinn gekk fínt. Öll erindi mín eftir skólann, með til-heyrandi lestarferðum þvers og kruss, endalausu labbi
og flótta frá slabbsugunum (ryksugur sem sjúga slabb)
voru meira og minna árangurslaus svo ég ákvað að gera
eitthvað yndislegt fyrir útspýtta hundskinnið mig. Ég ætl-
aði barasta að freista gæfunnar og fá miða, og það góðan
miða, á Ibsen-leikritið John Gabriel Borkman í BAM, með
Fionu Shaw, Alan Rickman og Lindsay Duncan!
3 Sigurreif og fékk miða á besta stað á leikritið og er skítsama þó ég fari ein! Þá fæ ég betri miða og enginn
reynir að blaðra við mig meðan á sýningu stendur. Nokkuð
veðruð en himinlifandi og fékk mér aukaverðlaun eftir
að hafa lagt þetta allt á mig, góðan espresso og bók um
Weimer-kvikmyndasenuna 1919-1933.
4 Ég var orðin svo spennt að sýna miðann og hress af kaffinu að ég hljóp heim að skipta um föt. Ingrid hrifs-
aði miðann af mér og fannst hann ekkert merkilegur. Hún
var bara reið yfir að ég skyldi ætla út og hún ein heima.
Ég gældi við það í smástund að smygla henni í Mary Popp-
ins-töskunni minni inn í BAM, en hún er til alls líkleg. Ég
var líka að verða sein.
5 Ég hljóp í stórhríð-inni, sem þá var
skollin á, í fínum fötum
og föðurlandi að BAM.
Fékk vitlausar leiðbein-
ingar frá viðutan vegfar-
endum og hljóp í öfuga
átt nokkrum sinnum og
fann samt æðruleysi!
Náði inn í leikhús rjóð
eins og humar og var
vísað á vitlausan stað
tvisvar, en fékk sætið
mitt löðursveitt á elleftu
stundu og þegar búin að
draga að mér óþægilega
mikla athygli. Sjötta röð
fyrir miðju! Sviðsmynd-
in fannst mér falleg,
snjóskaflar á sviðinu
sem minntu mig á uppruna minn og viðeigandi stórhríð. Ég
hló og skældi til skiptis og fauk í mig við og við með persón-
unum, þó einkum með Gunhild Borkman, leikinni af Fionu
Shaw af ótrúlegri fegurð í öllum litum. Hún er sannkallað
náttúruafl, kona sem mér hefur alltaf þótt mikið til koma.
6 Snjókoman eftir sýninguna var orðin enn þá meiri og 20 mínútna labbið varð mun lengra því allt var umlukið
snjóbreiðunni og ég varð að taka myndir. Hvað náttúran
er falleg, vefur sig utan um það sem manneskjan býr til og
lætur mann verða fyrir hughrifum. Deginum sem virtist
vera á leið í vaskinn lauk stórkostlega! Ég varð fyrir mikl-
um hughrifum og er umlukin náttúruaflinu Fionu Shaw.
Hinn 30. janúar árið 1933, fyrir réttum 78 árum, átti sér
stað hinn afdrifaríki gjörningur
að Adolf Hitler var skipaður
kanslari Þýskalands.
Hindenburg forseti setti Hitler
í embætti að áeggjan íhalds-
manna á þýska þinginu, sem
héldu að hann yrði auðsveipur
sem leppur þeirra. Um framhald-
ið þarf vart að fjölyrða.
Rúmum tólf árum síðar lauk
valdasetu hans þegar hann svipti
sig lífi í neðanjarðarbyrgi í Berl-
ín. Óhætt er að segja að enginn
einstaklingur í gjörvallri mann-
kynssögunni hafi skilið eftir sig
verri eftirmæli, enda er nafn
hans samnefnari fyrir grimmd-
arverkin sem framin voru af
hersveitum nasista í nafni Þriðja
ríkisins. - þj
Adolf Hitler
kemst til valda
Í ÞÁ TÍÐ …
1900ÁR 20111933
Á flótta undan slabbsugunum
MYNDBROT ÚR DEGI | Miðvikudaginn 26. janúar | Tekið á iPhone 4
Það snjóar í New York þessa dagana og þar á meðal á Tinnu Kristjánsdóttur sem leggur stund á leiklistarnám í stóra eplinu.
Skólinn, sambýliskanínan Ingrid Bergman og örvæntingarfull leit að leikhúsmiða áttu hug hennar óskiptan á miðvikudaginn.
Heilnæm safahreinsun
Bættu heilsuna á lífrænan hátt
Nú getur þú fengið sérpakkaðar umbúðir af lífrænum og
næringarríkum söfum á sértilboði í næstu matvörubúð.
Yggdrasils safarnir eru framleiddir undir ströngustu
gæðastöðlum í lífrænni ræktun.
Safarnir henta vel til safahreinsunar eða einfaldlega sem
hollur safi til drykkjar.
Engin kemísk rotvarnar ,efni
litarefni eða sætuefni.
Engar erfðabreyttar afurðir.
Ekki úr þykkni.
lífrænt.00% 1
Náðu þér
í kassa!