Fréttablaðið - 29.01.2011, Page 73
LAUGARDAGUR 29. janúar 2011 49
HM 2011 Guðmundur Guðmundsson lands-
liðsþjálfari bar sig nokkuð vel eftir tapið
gegn Króötum þó svo að hann sé vitan-
lega afar svekktur með síðari hlutann á
mótinu.
„Þetta var grátlegt tap. Það voru tveir
tíu mínútna kaflar sem voru ekki nógu
góðir. Við fylgdum ágætri stöðu ekki nógu
vel eftir. Það vantaði herslumuninn og ég
er vonsvikinn að við skyldum ekki hafa
klárað leikinn,“ sagði Guðmundur.
„Við þurfum að skoða hvað gerðist í
þessu móti. Við spilum frábærlega í riðl-
inum en urðum að fara á fullu í alla leiki.
Síðan hittum við ekki á góðan leik gegn
Þjóðverjum. Það varð mikið spennufall og
vonbrigðin mikil því við ætluðum okkur
meira eða í undanúrslit. Eftir það var á
brattann að sækja,“ sagði Guðmundur og
bætti við að ná sjötta sæti væri samt mjög
góður árangur.
„Það var ekki innistæða fyrir því að
fara lengra að þessu sinni. Í október
var ég svartsýnn því við vorum að spila
illa. Okkur tókst að búa til frábæra vörn
á skömmum tíma og hún skilaði okkur
raunverulega þessu sjötta sæti. Það er
ég ánægður með en við vorum ekki nógu
góðir til að fara lengra og við verðum að
átta okkur á því.“ - hbg
Guðmundur Guðmundsson er þokkalega sáttur við árangurinn á HM:
Við ætluðum okkur meira
ALVEG BÚINN Á ÞVÍ Guðmundur Guðmundsson og Einar Þorvarðarson tala hér saman eftir tapleikinn á móti
Króatíu í gærkvöldi. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
HM 2011 Aron Pálmarsson var
virkilega svekktur eftir tapið
gegn Króatíu í gær. Hann var
bæði svekktur með leikinn og
sjálfan sig.
„Ég get ekki talað fyrir allt
liðið en ég var eins og fáviti
í þessum leik. Ég mætti ekki
stemmdur. Það er ekki hægt að
afsaka sig með því að vera eitt-
hvað lemstraður því það eru allir
lemstraðir. Þetta er ömurlegt
og ég er drullufúll,“ sagði Aron
hundsvekktur.
„Það er ömurlegt að enda mótið
svona. Við erum búnir að vera í
ákveðinni lægð og ég er hund-
fúll að við skyldum ekki drullast
til þess að vinna þennan leik. Við
vorum komnir í fína stöðu í leikn-
um en svo hrundi allt.
Ég veit ekki hvort það var ein-
beitingarleysi eða menn þreytt-
ir. Ég á erfitt með að tala því ég
er ógeðslega fúll yfir þessu öllu
saman.“ - hbg
Aron Pálmarsson:
Ömurlegt að
enda svona
SNORRI STEINN OG BJÖRGVIN Strákarnir
voru svekktir í leikslok. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
HM 2011 Eftir leik Íslands og
Króatíu yfirgáfu strákarnir
okkar Svíþjóð og héldu til
Kaupmannahafnar.
Þar var slegið upp mikilli
veislu í boði skartgripajöfurs-
ins, Jespers Nielsen, sem er eig-
andi þýska liðsins Rhein-Neckar
Löwen og danska liðsins AGK.
Guðmundur landsliðsþjálfari
þjálfar Löwen og með því leika
Guðjón Valur, Ólafur Stefáns-
son og Róbert Gunnarsson. Þeir
Snorri Steinn og Arnór Atlason
leika með AGK. - hbg
Strákarnir okkar í gærkvöldi:
Djammað í
boði Jespers
TEKIÐ Á BALIC Sverre Jakobsson reynir
hér að stoppa leikstjórnanda Króata í
leiknum í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
útsala
afsláttur
30
70til prósenta
útivistarfatnaður sundfatnaður sportfatnaður íþróttaskór barnafatnaður o.fl.
ÍS
L
E
N
S
K
A
/S
IA
.I
S
/U
T
I
53
27
1
01
/1
1
HOLTAGÖRÐUM GLÆSIBÆ KRINGLUNNI SMÁRALIND www.utilif.is
Enn m
eiri út
sala.
Allt að
70%
afslát
tur.