Fréttablaðið - 29.01.2011, Page 80
Mest lesið
DREIFING: dreifing@posthusid.is
EF BLAÐIÐ BERST EKKI: 512 5060
VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN OG SKIPTIBORÐ: 512 5000 VISIR.IS
Ritstjórn: 512 5313, Fax: 512 5301, ritstjorn@frettabladid.is Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is PRENTUN: Ísafoldarprentsmiðja
FRÉTTIR AF FÓLKI
Skaupsmaður á Selfossi
Gunnar Björn Guðmundsson
er ákaflega fjölhæfur leikstjóri
en hann hefur getið sér gott orð
fyrir kvikmyndir sínar Astrópíu og
Gauragang og ekkert síður síðustu
tvö Skaup sem hann hefur haldið
utan um. Gunnar heldur hins vegar
fast í ræturnar úr áhuga-
mannaleikhúsunum á
milli þess sem hann
leikstýrir helstu leik-
arastjörnum landsins
og hefur tekið að
sér að leikstýra fyrir
Leikfélag Selfoss. Um
gamanleik í spunaformi
er að ræða en
áætlaður frum-
sýningardagur
er 25. febrúar.
NÝTT ÍSLENSKT
www.gosogvatn.is
Norðmenn ræða Árna
Tillaga Árna Johnsen og Sigmund-
ar Ernis Rúnarssonar þess efnis
að norsk-rússneski rithöfundurinn
Marie Amelie fái íslenskan ríkis-
borgararétt hefur vakið athygli hjá
frændum okkar í Noregi. Fjölmiðlar
þar segja frá málinu og ræða við
Árna, sem telur að frumvarpið ætti
að geta verið komið á dagskrá
þingsins á næstu vikum. Fyrst á
hins vegar eftir að koma í ljós hvort
frumvarpið sé tækt til afgreiðslu,
enda hefur komið í ljós að Amelie
hefur engan áhuga á að gerast
Íslendingur. Fréttin hefur vakið
misjöfn viðbrögð í Noregi. Sumir
eru ánægðir en aðrir spyrja hvers
vegna í ósköpunum Íslendingar séu
að skipta sér af norskri
pólitík. Nóg sé af
hælisleitendum í Nor-
egi sem réttara væri
að aðstoða.
- fgg, - sh
1 Börnin skreyttu kistu
Sigurjóns
2 Hundurinn fundinn eftir
hrakninga
3 Þýski jöklafarinn fundinn
4 Lögmaður tók handboltann
fram yfir skuldara í vanda
5 Ráðgátan um flygilinn á
flæðiskerinu er leyst