Fréttablaðið - 15.02.2011, Side 12

Fréttablaðið - 15.02.2011, Side 12
12 15. febrúar 2011 ÞRIÐJUDAGUR Vaðlaheiðargögn eru flýtiframkvæmd sem ekki verður af án veggjalda. Framkvæmdin á ekki að bitna á öðrum verk- efnum Vegagerðarinnar. Samfélags kostnaður vegna slysa er margfalt meiri á öðrum vegköflum en þeim sem Vaðlaheiðargöng leysa af hólmi. Meðan öryggissjónarmið knýja á um vegbætur á suður- og suðvestur horni landsins virðast byggðasjónarmið lögð til grund- vallar við flýtimeðferð við gerð fyrirhugaðra ganga um Vaðla- heiði. Tölur úr slysaskrá Umferðar- stofu sýna að á meðan 50 slys og höpp hafi orðið á veginum norður fyrir Vaðlaheiði á níu ára tíma- bili, hafi orðið sex sinnum fleiri óhöpp á sambærilegum vegkafla á Vesturlandsvegi og átta sinnum fleiri á 27 kílómetra kafla á Suðurlands vegi. Í tölum sem Fréttablaðið kall- aði eftir frá Umferðarstofu kemur fram að frá ársbyrjun 2002 til septemberloka 2010 hafi einn látist á veginum sem Vaðla- heiðargöng myndu leysa af hólmi. Fimm slösuðust alvarlega og 33 lítið. Óhöpp án meiðsla eru 50 talsins. Á svipað löngum vegar- kafla á Vesturlandsvegi létust á sama tíma fimm manns og 20 slösuðust alvarlega. Og á vegar- kafla á Suðurlandsvegi létust sex og 32 slösuðust alvarlega. Spurning um forgangsröðun Uppreiknaðar tölur verkfræðistof- unnar Línuhönnunar um kostnað vegna slysa sýna að gífurlegur munur er á samfélagslegum kostn- aði vegna þessara þriggja vegar- kafla á tímabilinu, að ekki sé talað um þær þjáningar sem alvarleg slys hafa í för með sér. Sé miðað við uppreiknaðar tölur nemur kostnaður vegna slysa á veginum norður yfir Vaðlaheiði á tímabilinu rétt rúmum 975 milljónum króna. Kostnaður vegna slysa á vegar- kaflanum á Vesturlandsvegi er svo tæpir 4,4 milljarðar króna og 6,2 milljarðar á vegarkaflanum á Suðurlandsvegi. Runólfur Ólafsson, fram- kvæmdastjóri Félags íslenskra bifreiðaeigenda, segist vona að til lengri tíma auðnist mönnum að fara í framkvæmd á borð við Vaðlaheiðargöng. „Skylda okkar hlýtur hins vegar að vera að for- gangsraða, meðal annars út frá slysum,“ segir hann og bendir á að sá vegarkafli þar sem umferð myndi minnka verði af gerð Vaðla- heiðarganga sé í 54. sæti á lista yfir vegarkafla þar sem slys eru tíðust. „Síðan má horfa til Suður- landsvegar þar sem er að finna nokkra kafla sem eru á topp tuttugu.“ Göngin taka ekki frá öðru Undir lok janúar fundaði innan- ríkisráðherra fyrir norðan til að ganga úr skugga um að ekki væri þar sama andstaða við veggjöld til að fjármagna framkvæmdir og vart hefur orðið í nágrenni höfuðborgarinnar. Svo reyndist ekki vera og hefur því verið hald- ið áfram með undirbúning Vaðla- heiðarganga. „Það liggur ekki annað fyrir en verið sé að búa til hlutafélag í samræmi við lög sem samþykkt voru á þingi í fyrra. Fyrsta verkefni félagsins yrði svo að senda út svokallað forval og svo útboð í framhaldinu,“ segir Hreinn Haraldsson vegamálastjóri. Hann segir vonir standa til að af þessu FRÉTTASKÝRING: Hvað á að ráða vegaframkvæmdum? Engin flýtiframkvæmd án veggjalda Tíu hættulegustu vegarkaflarnir í dreifbýli Slys, með og án meiðsla, árin 2005 til 2009 Vegur Fjöldi slysa Vegalengd Slys/km 1 Hringv. frá Þrengslavegi (brú-sýslumörk) 115 4,41 km 26,1 2 Reykjanesbr. (Grindavíkurv.-Njarðvíkurv.) 66 4,56 km 14,5 3 Reykjanesbr. (brú yfir Vatnsl.str.veg-Grindavíkurv.)1 58 11,62 km 13,6 4 Hringv. (Þorlákshafnarvegur-Þrengslavegur) 213 16,63 km 12,8 5 Hringv. (Hvalfjarðarv.-Hvalfjarðargöng) 11 0,94 km 11,7 6 Hringv. (Þingvallav.-Brautarholtsvegur) 134 11,96 km 11,2 7 Hringv. (Borgarfjarðarbr.-Borgarnes, Borgarbraut) 26 2,48 km 10,5 8 Hringv. (Akrafjallsv. við Urriðaá-Hvalfjarðarvegur) 11 1,1 km 10,0 9 Hringv. (Hvalfjarðargöng) 55 5,76 km 9,5 10 Hringv. (Hafravatnsv.-Breiðholtsbraut) 31 3,41 km 9,1 Heimild: Ársskýrsla slysaskráningar Umferðarstofu árið 2009. Vegurinn norðan fyrir Vaðlaheiði Vesturlandsvegur Suðurlandsvegur Vegur norður f. Vaðlaheiði 26,4 km Látnir ........................................................................1 Alvarlega slasaðir .................................................5 Lítið slasaðir ........................................................ 33 Samtals ............................................................... 39 Óhöpp án meiðsla ..........................................50 Vesturlandsvegur 26,5 km Látnir ........................................................................5 Alvarlega slasaðir ..............................................20 Lítið slasaðir ......................................................125 Samtals ..............................................................150 Óhöpp án meiðsla ........................................275 Suðurlandsvegur 27,11 km Látnir ........................................................................6 Alvarlega slasaðir .............................................. 32 Lítið slasaðir ......................................................218 Samtals ............................................................. 256 Óhöpp án meiðsla ........................................391 Samanburður á fjölda slysa 2002-2010 Vesturlands- vegur frá Þingvallavegi að Akrafjallsvegi við Urriðaá að slepptum Hvalfjarðar- göngunum. Suðurlandsvegur frá Þrengsla- vegi að Biskupstungnabraut. Fyrirhuguð Vaðlaheiðargöng Núverandi vegur um Víkurskarð Akureyri Fn jó sk ad al ur Reykjavík Hv alf jör ðu r Hveragerði Ölfusá Akranes Selfoss Hlutfallslega meiri fjöldi slysa og óhappa en á vegi norður fyrir Vaðlaheiði: 478% 727% OKKAR líftryggingar hf. • Sóltúni 26 • 105 Reykjavík • Sími 540 1400 • Fax 540 1401 • www.okkar.is Öll börn og ungmenni eiga sér drauma um framtíðina. Undan sumum þeirra er fótunum kippt fyrirvaralaust vegna slysa eða sjúkdóma í æsku sem haft geta í för með sér ævilanga örorku. Þeir sem ekki hafa fest sig í sessi á vinnumarkaði standa utan lífeyriskerfisins og njóta því einungis bóta Tryggingastofnunar. OKKAR framtíð er ný og kærkomin framtíðartrygging barna og ungmenna sem skipt getur sköpum fyrir fjárhagslegt sjálfstæði þeirra á fullorðinsárum. Með OKKAR sparnaði, sem laus er til útborgunar við átján ára aldur, má treysta undirstöðurnar enn frekar. Framtíð - framtíðartrygging barna fyrir „efin” í lífinu og fjárhag fullorðinsáranna. „En mamma, þegar ég verð stór langar mig að verða svona lagari sem getur lagað alls konar dót og svoleiðis. Svo langar mig að verða blómalæknir svo að öll blómin geti lifað þó að veturinn komi. Best væri samt að vera hjólamaður. Þá getur maður hjólað allan daginn og haft nesti með sér og skoðað fuglana á leiðinni og svoleiðis. Svo langar mig að vera alltaf glaður - svona eins og Óli frændi. Ég held að hann þurfi aldrei að sofa eða borða fisk.” „…Svo langar mig að vera alltaf glaður - svona eins og Óli frændi. Ég held að hann þurfi aldrei að sofa…” Sjá nánar um Framtíð á okkar.is. z e b ra

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.