Fréttablaðið - 15.02.2011, Blaðsíða 27

Fréttablaðið - 15.02.2011, Blaðsíða 27
Elstu borgarar landsins þurfa margir að bíða í viku eftir að komast í bað. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM sér aðstoðar manneskju til baða og annars þegar þeir sjálfir vilja. Útrýmum valdaleysi aldraðra „Fullorðið fólk á ekki að vera ofurselt þeim sem selur því þjón- ustuna og við þurfum að útrýma valdaleysi þess á eigin „heimili“, sem öldrunarstofnanir eiga jú að vera,“ segir Valgerður. „Nú þarf það að miklu leyti að afsala sér fjárræði, sjálfræði og mannlegri reisn inni á stofnunum, borða það sem er í matinn hverju sinni, fara í háttinn á ákveðnum tíma og í bað eftir dagskrá,“ segir Valgerður, sem í sínu starfi heyrir að margir séu vannærðir á öldrunarheimilum landsins, en sjúkraliðar á stofnun- um hafa einnig látið uppi að sumt heimilisfólkið sé svangt. „Fæst viljum við skilyrðislaust borða það sem lagt er fyrir okkur og hjá fullorðnu fólki er oft minna um að vera en áður og matartíminn því hápunktur dagsins og það eina sem fólk hlakkar til. Eldra fólk á því að geta fengið sér í svanginn þegar það vill og það sem það langar í, rétt eins og það gerði heima hjá sér áður,“ segir Valgerður og bætir við að mötuneyti öldrunarstofnana séu úrelt sem slík. „Næringargildi skiptir sköpum fyrir heilsu aldraðra og næringar- upptaka er misjöfn, en rannsókn- ir hérlendis sýna að eldra fólk í heimahúsum og á sjúkrastofnun- um glímir í sumum tilfellum við næringarskort. Þá er lítið hugsað út í þá staðreynd að veikt fólk hefur minni matarlyst, langar ekki í hvað sem er og er kannski líka með lélegar tennur. Því þurfa aldraðir að hafa val- kost þegar þeir verða svangir á mismunandi tímum, en á öldrun- arstofnunum er mikið um einrétta máltíðir og feitan, gamaldags mat. Við þurfum því að leyfa elstu kyn- slóðinni að vera meiri þátttakandi í tilverunni og á eigin forsendum, ásamt því að huga að framtíðinni því æ fleiri Íslendingar eldast og aldurssamsetning þjóðarinnar er að breytast, en víst er að komandi kynslóðir munu ekki sætta sig við bað einu sinni í viku né einsleitan kost á matartímum.“ thordis@frettabladid.is Xxxxxxxxxxxxxxx telpurS onuK r Staðurinn - Ræktin Lágmúla 9 • 108 Reykjavík • Sími 581 3730 • Bréfasími 581 3732 • jsb@jsb.is • www.jsb.is Stutt og strangt Skráning alltaf í gangi! Sími 581 3730 Ný námskeið að hefjast Frjáls aðgangur að opna kerfinu og tækjasal Komdu þér í gang! l 2ja vikna námskeið 5x í viku í tækjasal með persónulegri leiðsögn og að l Tilvalið að mæta með vinkonunum – hámark 5 í hóp l Leiðbeiningar um mataræði l Mæling og vigtun í byrjun og enda námskeiðs Verð aðeins kr. 10.000. Barnagæsla - Leikland JSB Velkomin í okkar hóp! S&S stutt og strangt E F L IR a lm a n n a te n g s l / H N O T S K Ó G U R g ra fí s k h ö n n u n telpurS onuK r Staðurinn - Ræktin Lágmúla 9 • 108 Reykjavík • Sími 581 3730 • Bréfasími 581 3732 • jsb@jsb.is • www.jsb.is Ný námskeið að hefjast, innritun í síma 581 3730 STOTT PILATES er krefjandi æfingakerfi og frábær leið til að: l Móta líkamann, bæta líkamsvitund og líkamsstöðu. l Lengja vöðva og styrkja sérstaklega djúpvöðva maga og baks. l Losa spennu, auka liðleika og bæta jafnvægi milli vöðvahópa. l Losa um bakverki og hjálpa til við samhæfingu svo fátt eitt sé nefnt. Kennt er 2x í viku í 6 vikur. Kennari: Agnes Amalía Kristjónsdóttir. Mánudaga og miðvikudaga ü kl 10:00 / Þriðjudaga og fimmtudaga ü kl 16:30 Byrjenda- og framhaldsnámskeið. Verð kr. 19.900. Æfingakerfi byggt á pilatesæfingum Joseph Pilates. Barnagæsla - Leikland JSB Velkomin í okkar hóp! Frjáls aðgangur að opna kerfinu og tækjasal STOTT PILATES E F L IR a lm a n n a te n g s l / H N O T S K Ó G U R g ra fí s k h ö n n u n Síðustu innritunardagar! AFS á Íslandi • Sími 552 5450 • www. afs.is OPIÐ HÚS AFS-skiptinemasamtökin á Íslandi verða með opið hús í dag 15 febrúar kl. 17-19, í húsakynnum samtakanna, Ingólfsstræti 3, Reykjavík. Allir sem vilja forvitnast um skiptinemadvöl, sjálfboðaliðadvöl eða starfsemi okkar almennt, eru hvattir til að líta við og kynna sér það sem við höfum upp á að bjóða. Hringdu í síma ef blaðið berst ekki

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.