Fréttablaðið - 15.02.2011, Blaðsíða 23

Fréttablaðið - 15.02.2011, Blaðsíða 23
ÞRIÐJUDAGUR 15. FEBRÚAR 2011 HESTAVÖRUR Alda Jóna Nóadóttir og Óli Óskar Herbertsson í húsakynnum fyrirtækisins að Ögurhvarfi 2. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA Top Reiter á Íslandi hefur sett á markað nýjan hnakk, IQ, sem verslunareigandinn Ásgeir Svan Herbertsson segir taka öðrum fram í gæðum og virkni. Verslunin Top Reiter í Ögurhvarfi hefur frá opnun 2007 boðið upp á flest allt sem þarf til hestamennsk- unnar. Um þessar mundir er Top Reiter að setja á markað hnakk sem er „tæknilegt meistaraverk“, að sögn Ásgeirs Svans Herberts- sonar, eins eiganda Top Reiter. „Hnakkurinn kallast IQ og er engum öðrum líkur af þeim sem við höfum áður framleitt, en við höfum sent frá okkur ýmsar vand- aðar gerðir hnakka undanfarin ár. IQ hnakkurinn er fisléttur og ofurnæmur, bæði eftirgefanlegur og fjaðrandi. Hann liggur vel á nánast hvaða hesti sem er og er því eðlilegur hluti af samspili manns og hests. Ég geng svo langt að leyfa mér að segja að hann opni nýjar víddir í því samspili,“ segir hann. Hnakkurinn hefur verið fjög- ur ár í þróun og þar af fór umtals- verður tími í að hanna virkið. „Við ákváðum að endurhugsa framleiðsluferlið á virkinu. Yfir- leitt er virkið járnabundið eftir á en við það getur hnakkurinn skekkst. Við náðum aftur á móti að setja járnabindinguna inn í virkið. Útkoman er alveg einstakt virki, sem er nauðsynleg undir- staða að vönduðum hnakki,“ segir Ásgeir. En þess má geta að virkið hefur verið prófað í fleiri tegund- um af Top Reiter-hnökkum síðast- liðið ár með afar góðum árangri. „Þess má jafnframt geta að þessi hönnun á virki þótti fela í sér það mikla nýsköpun og var það flókin að Evrópusambandið sá sérstaka ástæðu til að styrkja okkur í lokin á þróunarferlinu,“ bendir hann á og bætir við að hnakkurinn sé líka mjög flottur í útliti og fáist í tveim- ur útgáfum. „Þetta er sá hnakkur sem við erum hvað stoltust af. Með honum teljum við okkur hafa framleitt hnakk, einstakt verkfæri, sem ætti að höfða til flestra hestamanna,“ útskýrir Ásgeir og segir sjón vera sögu ríkari. Top Reiter á Íslandi heldur úti heimasíðunni www.topreiter.is, þar er meðal annars að finna upp- lýsingar um fyrirtækið og vörur þess. Alveg einstakt verkfæri www.topreiter.is Verslunin Top Reiter býður upp á gott og fjölbreytt úrval af reiðfatn- aði og fylgihlutum. „Við erum til að mynda með okkar eigin fatnað, þar ber fyrst að nefna Top Reiter- reiðbuxurnar sem hafa notið mik- illa vinsælda undan farin ár enda ákaflega vönduð vara en einnig framleiðir Top Reiter kuldagalla, peysur og ýmislegt fleira,“ segir Alda Jóna Nóadóttir, einn eigenda verslunarinnar. Að hennar sögn eru líka seldar í búðinni hágæða yfirhafnir fyrir bæði dömur og herra frá þýska fyrirtækinu Wellensteyn. „Við höfum verið með þetta merki frá því að við opnuðum árið 2007 og því komin með góða reynslu af því. Viðskiptavinir okkar hafa tekið þessum fatnaði mjög vel enda fyrst og fremst bæði vandað og flott tískumerki sem er selt við góðan orðstír víða um heim. Fleira fatakyns er í búðinni sem nýtist hestamönnum vel, til dæmis hjálmar, skór og hansk- ar, þar á meðal hanskar frá þýska fyrirtækinu Roeckl, sem Alda segir eftirsótta meðal íslenskra hestamanna. Þá eru fleiri vöruflokkar á boð- stólum, hnakkar, reiðtygi, fóður og snyrtivörur. Alda hvetur hesta- menn til að kíkja í heimsókn, en verslunin Top Reiter kappkostar að bjóða bjóða faglega og persónu- lega þjónustu í fallegu umhverfi. Fjölbreyttur fatnaður fyrir íslenska reiðmenn Vel er tekið á móti hestamönnum í Top Reiter. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.