Fréttablaðið - 15.02.2011, Blaðsíða 13
ÞRIÐJUDAGUR 15. febrúar 2011 13
Óli Kristján
Ármannsson
olikr@frettabladid.is
geti orðið á næstu vikum og mán-
uðum og verkið verði boðið út í
vor.
Heildarkostnaður við jarð-
göngin er áætlaður um 10 millj-
arðar króna, en Vegagerðin á að
eiga 51 prósent í hlutafélaginu
sem stendur að framkvæmdinni.
„Vegagerðin þarf bara að leggja
fram 200 milljónir og svo aðrir 200
milljónir þannig að hlutafé yrði
400 milljónir króna,“ segir hann.
Félagið á svo að taka lán fyrir því
sem út af stendur. „Þetta á ekki
að íþyngja hefðbundnum verkefn-
um Vegagerðarinnar eða koma
niður á öðru. Sérstaða Vaðlaheiðar-
ganganna er sú að þetta er allan
tímann eyrnamerkt sem veggjalda-
verkefni sem greiðist með gjöldum
og þannig borgist lánin til baka.“
Eigendur að 49 prósenta hlutnum
á móti Vegagerðinni segir Hreinn
að verði sveitarfélög fyrir norðan
og aðrir sem áhuga hafa á því að
sjá göngin verða til.
Næstu jarðgöng sem fjármögn-
uð yrðu á hefðbundinn hátt segir
Hreinn verða ný Norðfjarðar-
göng. Umferð milli Eskifjarðar
og Neskaupstaðar sé hins vegar
ekki svo mikil að hægt sé að fara
veggjaldaleið. „Forsenda þess að
fara í svona veggjöld er að fram-
kvæmdin sé arðbær og fjárfest-
ingin skili sér til baka.“ Vaðla-
heiðargöng segir Hreinn að séu
flýtiframkvæmd sem verði ekki
að veruleika nema menn séu til-
búnir að fara þessa leið.
Áformað er að lán við gerð
Vaðlaheiðarganga verði tekin hér
innanlands til 30 eða 40 ára og
greidd niður með vegatollum, líkt
og gert var með Hvalfjarðargöng.
Þetta kemur fram í umfjöllun á vef
Félags íslenskra bifreiðaeigenda
(FÍB) í gær um hvort vegatollar
fái staðið undir kostnaði við gerð
Vaðlaheiðarganga.
„Það sem er líkt með þessum
göngum er kostnaðurinn. Upp-
reiknað til verðlags í dag var
kostnaður við Hvalfjarðargöng 11
milljarðar króna en áætlað er að
Vaðlaheiðargöng kosti á bilinu 9-10
milljarða,“ segir í umfjöllun FÍB um
leið og bent er á að umferð fyrir
norðan sé margfalt minni en um
Hvalfjarðargöng. „Spurningin sem
vaknar er hvað vegatollar þurfa að
vera háir um Vaðlaheiðargöng til
að standa undir vöxtum og afborg-
unum – og hvort það nægi til.“
Fram kemur að umferð um
Hvalfjarðargöng nemi að jafnaði
5.400 bílum á dag allan ársins
hring, eða tæplega tveimur millj-
ónum bíla á ári. Meðal gangagjald
er sagt vera 485 krónur. Á móti
er bent á að 12 hundruð bílar fari
að jafnaði daglega um Víkurskarð,
sem Vaðlaheiðargöng komi til með
að leysa af hólmi. „Leiðarstyttingin
er 16 kílómetrar og tímasparnaður
níu mínútur. Leiðarstytting um
Hvalfjörð er hins vegar 42 km og
tímasparnaður um 30 mínútur.
Segja má að það geti verið þrefalt
„ábatasamara“ að fara um Hval-
fjarðargöng en Vaðlaheiðargöng,“
segir í umfjöllun FÍB. „Álitamálið
sem aðstandendur Vaðlaheiðar-
ganga standa frammi fyrir er hvað
vegatollurinn ÞARF að vera hár til
að standa undir kostnaðinum og
hvað hann MÁ vera hár. Helst þarf
þetta að vera ein og sama talan. Ef
vegatollar standa ekki undir kostn-
aðinum þarf ríkissjóður að borga
með göngunum. Ákvörðun um að
hefja gerð þeirra byggist hins vegar
á því að ríkið borgi ekki.“
FÍB um tolla í
Vaðlaheiðargöng
MCDONALD HÁLSHÖGGVINN
Finnski listamaðurinn Jani Leinonen
virtist hafa gaman af að hálshöggva
sjálfan Ronald McDonald, einkennis-
dúkku skyndibitakeðjunnar McDonald’s.
Dúkkunni höfðu hann og félagar hans
rænt úr einum veitingastaðanna.
NORDICPHOTOS/AFP
STJÓRNSÝSLA „Það er erfitt að finna
rök fyrir því að Fjármálaeftirlitinu
séu takmörk sett í starfsemi sinni
þótt staðsetning þess sé utan tiltek-
inna póstnúmera í Reykjavík,“ segir
bæjarráð Kópavogs, sem lýsti fyrir
helgi furðu sinni á auglýsingu eftir
húsnæði fyrir Fjármálaeftirlitið.
Í auglýsingu Ríkiskaupa fyrir
hönd FME er óskað eftir tvö þús-
und fermetra húsnæði undir starf-
semi stofnunarinnar. Skilyrði er að
húsnæðið sé í póstnúmerum 101 til
108 í Reykjavík. Stofnunin er vaxin
upp úr núverandi húsnæði á Suður-
landsbraut.
„Bæjarráð dregur í efa lögmæti
slíkrar auglýsingar þar sem slíkar
takmarkanir útiloka sveitarfélögin
á höfuðborgarvæðinu önnur en
Reykjavík,“ bókaði einróma bæjar-
ráð, sem fól bæjarlögmanni Kópa-
vogs að kanna lögmæti auglýsingar-
innar.
„Ástæðan er vinnutap og kostn-
aður sem felst í því að vera lengra í
burtu frá stjórnsýslunni; ráðuneyt-
um, Seðlabanka, Alþingi og þeim
stofnunum stjórnsýslunnar sem við
höfum regluleg samskipti við,“ segir
Gunnar Andersen, forstjóri FME, er
hann útskýrir óskir stofnunarinnar
um staðsetningu. „Ég vona að okkur
sé frjálst að velja okkur staðsetn-
ingu á húsnæði.“ - gar
Bæjarráð Kópavogs undrast skilmála Fjármálaeftirlitsins varðandi leiguhúsnæði:
Telja FME geta verið utan Reykjavíkur
GUNNAR ANDERSEN Forstjóri FME segir
kostnaðarauka felast í því að vera fjarri
stjórnsýslunni í miðbæ Reykjavíkur.
FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
landsbankinn.is 410 4000Landsbankinn
Opnir fundir
með nýjum
stjórnendum
Landsbankans
Steinþór Pálsson, bankastjóri Landsbankans,
á opnum fundi á Akureyri 3. febrúar.
Nýir stjórnendur kynna nýja stefnu
bankans og framtíðarsýn, breytingar
sem orðið hafa og aðgerðalista
næstu mánaða. Við viljum hlusta
eir skoðunum og viðbrögðum ykkar,
eigenda bankans, til að efla bankann
enn frekar. Við ætlum að vera
Landsbankinn þinn.
Höfn í Hornafirði Nýheimar
Fimmtudagur 17. febrúar kl. 20.00
Skráning á landsbankinn.is
og í 410 4000 – allir velkomnir!
Reykjavík Grand Hótel
Þriðjudagur 15. febrúar kl. 17.00