Fréttablaðið - 15.02.2011, Blaðsíða 14

Fréttablaðið - 15.02.2011, Blaðsíða 14
14 15. febrúar 2011 ÞRIÐJUDAGUR FRÁ DEGI TIL DAGS greinar@frettabladid.is FRÉTTABLAÐIÐ Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík SÍMI: 512 5000, ritstjorn@frettabladid.is FRÉTTASTJÓRAR: Arndís Þorgeirsdóttir arndis@frettabladid.is, Kristján Hjálmarsson, kristjan@frettabladid.is Trausti Hafliðason trausti@frettabladid.is og Höskuldur Daði Magnússon (dægurmál) hdm@frettabladid.is HELGAREFNI: Sigríður Björg Tómasdóttir sigridur@frettabladid.is MENNING: Bergsteinn Sigurðsson bergsteinn@frettabladid.is ALLT OG SÉRBLÖÐ: Roald Eyvindsson roald@frettabladid.is og Sólveig Gísladóttir solveig@frettabladid.is ÍÞRÓTTIR: Henry Birgir Gunnarsson henry@frettabladid.is LJÓSMYNDIR: Pjetur Sigurðsson pjetur@frettabladid.is FRAMLEIÐSLUSTJÓRI: Kolbrún Ingibergsdóttir kolbrun@frettabladid.is ÚTGÁFUFÉLAG: 365 miðlar ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Ingibjörg S. Pálmadóttir FORSTJÓRI OG ÚTGÁFUSTJÓRI: Ari Edwald RITSTJÓRI: Ólafur Þ. Stephensen olafur@frettabladid.is AÐSTOÐARRITSTJÓRI: Steinunn Stefánsdóttir steinunn@frettabladid.is Fréttablaðið kemur út í 90.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslunum á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. Issn 1670-3871 HALLDÓR Nýbirt samantekt Hagstofu Íslands úr reikningum sjávarútvegsfyrirtækja sýnir að svokallaður hreinn hagnaðar (sem sumir enskumælandi hagfræðingar kalla superprofit, ofurhagnað) í veiðum og vinnslu nam 45 milljörðum króna á árinu 2009. Í grein hér í blaðinu talar hagfræð- ingur Landssambands íslenskra útvegs- manna þessar tölur niður þó að fátt bendi til annars en að hreinn hagnaður veiða og vinnslu verði áfram mældur í milljarða- tugum næsta áratuginn eða svo. Undir lok greinar sinnar fullyrðir hag- fræðingur LÍÚ að verði hluti af auðlinda- rentunni (ofurhagnaðinum) beint til almennings muni gengið lækka og lífskjör almennings versna. Enginn rökstuðningur er lagður fram þessari fullyrðingu til stuðnings. Það er enda eðlilegt, ég kann ekki þá hagfræði sem fær rök hagfræð- ings LÍÚ til að ganga upp. Rifjum upp að með álagningu veiðigjalds er verið að veita tekjum af auðlindinni frá handhöfum veiðiheimilda til eiganda auðlindarinnar, frá eigendum útgerðarfyrirtækja til almennings. Þessu fylgir óhjákvæmi- lega að ráðstöfunartekjur útgerðarmanna minnka og að tekjur og lífskjör almenn- ings batna. Tekjutilfærslum af þessu tagi kunna að fylgja áhrif á gengi og innlent verðlag, en þá því aðeins að almenningur ráðstafi tekjum með verulega öðrum hætti en útgerðarmenn. Til dæmis er líklegt að við skilyrði frjálsra fjármagnsflutninga séu útgerðarmenn líklegri til að flytja tekjur og eignir til útlanda en almennir borgarar. Tilflutningur tekna til almenn- ings frá útgerðarmönnum er því líklegri til að styrkja gengi en að veikja það. Þannig að veiðigjald mun styrkja lífskjör almennings úr tveimur áttum, með bein- um hætti gegnum lægri tekjuskatt eða lægri virðisaukaskatt eða beinar tilfærsl- ur og með óbeinum hætti með (smávægi- legri) styrkingu á raungengi. Fullyrðing hagfræðings LÍÚ um að álagning veiðigjalds muni veikja lífskjör almennings stenst ekki skoðun. Hitt er annað mál, og hefur aldrei verið dulið, að álagning veiðigjalds mun skerða tekjur handhafa veiðiheimilda en auka tekjur eiganda sjávarauðlindarinnar, sem er íslenskur almenningur. Skiljanlegt er að LÍÚ sé það lítt að skapi. Veiðigjald og gengi Efnahagsmál Þórólfur Matthíasson prófessor í hagfræði við Háskóla Íslands M argrét Guðmundsdóttir, formaður Félags atvinnu- rekenda og forstjóri lyfjafyrirtækisins Icepharma, hélt athyglisverða ræðu á fundi félagsins í síðustu viku, sem sagt var frá í Fréttablaðinu. Margrét gagnrýndi meðal annars þá yfir- þyrmandi athygli sem gömlu frumframleiðslugreinarnar, sjávar- útvegur og landbúnaður, fengju hjá stjórnmálamönnum og fjöl- miðlum miðað við hlut sinn í atvinnulífinu. Það er sjónarmið sem mikið er til í. Við undirbúning umsóknar um aðild að Evrópu- sambandinu var þannig nánast eingöngu rætt um hagsmuni þessara tveggja atvinnugreina. Þótt þær séu mikilvægar verður mestu vaxtartækifærin og verð- mætustu störfin ekki þar að finna á næstu árum. Tæki færin liggja í öðrum atvinnugreinum og mætti ræða meira um hvernig á að halda hagsmunum þeirra til haga, til dæmis gagnvart ESB. Margrét gagnrýndi sömuleiðis hversu uppteknir Íslendingar væru af umræðu um náttúruauðlindir. Hún hefur rekið fyrirtæki í Danmörku og tók dæmi af Dönum, sem lengst af hafa verið fátækir af auðlindum og vöxtur og þroski samfélagsins hefur fyrir vikið byggzt á menntun. Áherzla á verk- og verkfræðimenntun hefur skilað sér í uppbyggingu stórra útflutningsfyrirtækja. Hér á landi er verkfræðimenntun nú skorin niður og atvinnulífið segir ekki orð, eins og Margrét vakti athygli á. „Í ljósi þess hvernig Danir hafa byggt upp sitt öfluga atvinnu- líf með sterkum og oft alþjóðlegum framleiðslufyrirtækjum er rökrétt að velta því upp hvort auðlindirnar sem við Íslendingar erum svo rík af séu okkur mögulega hindrun í að vaxa á öðrum sviðum,“ sagði Margrét. „Getur verið að við einblínum of mikið á þær og þá hvort og hvernig við getum nýtt þær í stað þess að víkka sjóndeildarhringinn og nýta önnur tækifæri?“ Þetta er áhugaverð spurning. Umræður á Íslandi snúast mikið um hvort og hvar eigi að virkja, hver eigi kvótann, hvað eigi að borga fyrir hann og svo framvegis. Á sumum sviðum er umræðan komin út í vitleysu. Þegar rætt er um aðild að alþjóðasamstarfi hafa sumir áhyggjur af að útlendingar ásælist auðlindir okkar. Þrálátur misskilningur um að verið sé að selja náttúruauðlindir á Suðurnesjum tefur fyrir erlendri fjárfestingu í atvinnulífinu. Að einhverju leyti hefur bankahrunið spillt fyrir þeim sem vilja taka ofan auðlindagleraugun. Uppbygging fjármálaþjónustu var oft tekin sem dæmi um að hér væri hægt að byggja upp arð- vænlegar atvinnugreinar, sem ekki byggðu á nýtingu annarra auðlinda en mannauðsins. Eftir hrun hafa margir leitað aftur í það sem er þekkt, öruggt og íslenzkt. Vaxtarmöguleikar Íslands liggja í að virkja menntun, þekk- ingu, hugvit og rannsóknir til að byggja upp nýjar, öflugar og alþjóðlegar framleiðslugreinar. Umræðan ber hins vegar iðulega vott um að sjóndeildarhringur margra nær ekki svo langt. Byrgja deilur um náttúruauðlindir okkur sýn á önnur tækifæri í efnahagslífinu? Víðari sjón- deildarhringur Ólafur Þ. Stephensen olafur@frettabladid.is SKOÐUN Allra flokka kvikindi Ný auglýsingaherferð Evrópusinna verður kynnt í dag. Þar munu 75 manns stíga fram sem andlit herferðar innar. Tveir þingmenn eru þeirra á meðal, þær Ragnheiður Ríkharðsdóttir og Siv Friðleifsdóttir. Framsóknar menn eiga fleiri fulltrúa í hópnum, til dæmis Gísla Tryggvason, talsmann neytenda, og Sæunni Stefáns dóttur, fyrrverandi þingmann. Þá er Þröstur Haraldsson, sem nýver- ið lét af starfi ritstjóra Bændablaðs- ins, á meðal þátttakenda, eins og Grétar Þorsteinsson, fyrr- verandi forseti ASÍ. Hann hefur setið á framboðslist- um Vinstri grænna. Menningin með Mennta- og menningarlífið er einnig áberandi: Grínistarnir Bergur Ebbi Benediktsson og Dóri DNA, Hannes Pétursson skáld, Njörður P. Njarðvík, prófessor emeritus, Óttarr Proppé, borgarfulltrúi og tónlistarmaður, Högni Egilsson úr Hjaltalín, rithöfundarnir Jón Kalman Stefáns- son, Páll Valsson og Iðunn Steins- dóttir og tónlistar- maðurinn Sigtryggur Baldursson láta öll sjá sig. ...og yfirmaður Staðlaráðs Og fleiri misóvænt nöfn má tína til: Jóhann R. Benediktsson, fyrrverandi lögreglustjóri á Suðurnesjum, Finnur Oddsson hjá Viðskiptaráði, upplýsinga- fulltrúarnir G. Pétur Matthíasson, Svan- borg Sigmarsdóttir og Sigríður Dögg Auðunsdóttir, Jórunn Frímanns- dóttir, fyrrverandi borgarfulltrúi, Jón Diðrik Jónsson, sem var forstjóri Glitnis á Íslandi, og Árni Finnsson, formaður Náttúruverndarsamtakanna. Fæstum þarf þó að koma mjög á óvart að framkvæmdastjóri Staðlaráðs sé Evrópu- sinnaður. stigur@frettabladid.is

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.