Fréttablaðið - 15.02.2011, Blaðsíða 36

Fréttablaðið - 15.02.2011, Blaðsíða 36
28 15. febrúar 2011 ÞRIÐJUDAGUR folk@frettabladid.is Tónlist ★★★ The Heavy Experience The Heavy Experience Þessi fyrsta plata hljómsveitarinnar The Heavy Experience er um margt óvenjuleg. Í fyrsta lagi er þetta er tíu tommu vínylplata, en þær eru afar sjaldgæfar í seinni tíð. Tíutommurnar fengu alltaf sérstakan sess í plötu- safninu á þeim tíma þegar vínyllinn var allsráðandi. Iður til fóta með Þey var t.d. tíutomma og Tórt verður til trallsins með Stuð- mönnum. Í öðru lagi er þetta instrúmental rokkplata. Hún er tveggja laga, en samt hátt í tuttugu mínútur að lengd. The Heavy Experience er fimm manna sveit, skipuð tveimur gítarleikurum, bassa- leikara, trommuleikara og saxófónleikara. Tónlistin er hæggeng, þung og innlifunar- kennd. Lögin eru byggð upp í ákveðinn hápunkt og fjara svo rólega út aftur. Það er auðheyrt að menn eru ekkert að flýta sér að rumpa þeim af. Gítartónarn- ir dragast iðulega á langinn og fá að hljóma óáreittir svo að stundum verða úr hálfgerðar drunur. Saxóf- ónninn leikur svo frjálslega yfir öllu saman og setur skemmtilegan svip á útkomuna. Eins og áður segir eru tvö lög á plötunni. Bæði góð, en það fyrra Bad Temper, Bloody Sun er sýnu betra. Snilldarlag. Hljómur plötunnar er fínn og skilar tónlistinni vel, þó að eflaust sé ennþá sterkari upplifun að heyra þessa tónlist á tónleikum. Á heildina litið flott frumsmíð frá hljómsveit sem spennandi verður að fylgjast með í framtíðinni. Trausti Júlíusson Niðurstaða: Fín innlifun frá The Heavy Experience. Ný tíutomma í safnið Afþreyingarvefurinn Filma.is og 365 miðlar hafa gert með sér samstarfssamning um að Filma. is selji eða leigi aðgang á netinu á efni í eigu 365 miðla sem hefur verið sýnt á Stöð 2. Meðal vin- sælla þátta raða Stöðvar 2 sem þegar eru fáanlegar á Filma.is eru Vaktaseríurnar þrjár, gam- anþáttaröðin Ástríður, Wipeout, Réttur og Steindinn okkar. „Við fögnum þessu samstarfi við Filma.is,“ segir Pálmi Guðmunds- son, framkvæmdastjóri dagskrár- sviðs 365 miðla. „Það er að sjálf- sögðu markmiðið að dagskrárefni okkar sé aðgengilegt sem víðast.“ Þættir leigðir á Filma.is NÝ ÞJÓNUSTA Forsvarsmenn Filma.is og 365 miðla handsala samninginn. The King´s Speech hlaut konunglegar móttökur á bresku Bafta-verðlauna- hátíðinni. Myndin sópaði til sín sjö verðlaunum og Colin Firth var valinn besti leik- arinn annað árið í röð. Kvikmyndin The King´s Speech sópaði til sín verðlaunum á bresku Bafta-hátíðinni á sunnudags- kvöld. Hún hlaut sjö verðlaun, þar á meðal sem besta myndin og fyrir besta leikarann, Colin Firth. Samleikarar hans, þau Hel- ena Bonham Carter og Geoffrey Rush, fengu einnig Bafta fyrir bestan leik í aukahlutverkum. Firth vann einnig Bafta á síðasta ári fyrir hlutverk sitt í myndinni A Single Man. Þessi fimmtugi leikari hefur einnig unnið Golden Globe og Screen Actors Guild verðlaun- in fyrir hlutverk sitt sem hinn stamandi Bretakonungur Georg VI, auk þess sem hann þykir lík- legur til að hreppa Óskarinn 27. febrúar. David Fincher var valinn besti leikstjórinn fyrir myndina The Social Network og Natalie Port- man var kjörin besta leikkonan í aðalhlutverki fyrir frammistöðu sína í Black Swan. Portman er barnshafandi og mátti ekki fljúga til Bretlands til að vera viðstödd athöfnina. Besta erlenda myndin var kjörin The Girl with the Dragon Tatto sem er byggð á bók Stiegs Larsson, Karlar sem hata konur. Myndin Inception hlaut þrenn verðlaun, öll fyrir tæknilega úrvinnslu. Athygli vakti að mynd Dannys Boyle, 127 Hours, fékk engin verðlaun þrátt fyrir að hafa feng- ið átta tilnefningar. Þá var leikar- inn Sir Christopher Lee heiðraður af Bafta-akademíunni, ásamt J.K. Rowling, höfundi Harry Potter, fyrir framlag sitt til breskrar kvikmyndalistar. - fb YFIRBURÐIR KING´S SPEECH COLIN FIRTH Firth var kjörinn besti leikarinn á Bafta-hátíðinni annað árið í röð. NORDICPHOTOS/GETTY SOCIAL NETWORK Aðalleikarar The Social Network, Jesse Eisenberg og Andrew Garfield, tóku á móti verðlaununum fyrir hönd Davids Fincher. POTTER-DÖMUR Emma Watson úr Harry Potter myndunum og J.K. Rowling, höfundur bókanna, stilltu sér upp. 17 KLUKKUTÍMAR af viðtalsefni sem fréttaskýringa-þátturinn 60 Minutes tók af Lady Gaga á þriggja mán-aða tímabili hafa verið klipptir niður í 12 mínútur. Viðtalið verður sýnt á næstunni. ÍS L E N S K A S IA .I S M S A 5 31 35 0 2/ 11 100% HÁGÆÐA MYSUPRÓTEIN WWW.MS.IS NÚ EINNIG FÁANLEGUR Í FERNU PRÓTEINDRYKKURINN SEM ÍSLENDINGAR FÁ ALDREI NÓG AF HLEðSLA ER KJÖRIN FYRIR ALLA ÞÁ SEM TREYSTA Á HOLLA OG UPPBYGGILEGA NÆRINGU EFTIR GÓðA ÆFINGU, LANGT HLAUP EðA MILLI MÁLA. ÞAð ER ENGIN TILVILJUN Að ÍSLENDINGAR FÁ ALDREI NÓG AF HLEðSLU. HENTAR VEL FÓLKI MEð MJÓLKURSYKURSÓÞOL. MJÓLKURSAMSALAN NÝBRAGð-TEGUND

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.