Fréttablaðið - 15.02.2011, Page 24

Fréttablaðið - 15.02.2011, Page 24
 15. FEBRÚAR 2011 ÞRIÐJUDAGUR2 ● hestavörur Vefsíðan sponn.is er orðin þekkt meðal hestamanna en fyrirtækið Fengur hefur getið sér gott orð með innlendri framleiðslu á spóni, undirlagi í hesthús og rekur spónaverk- smiðju í Hveragerði. „Við höfum verið í stöðugri sókn frá því að Fengur var stofnaður árið 2009 og þar hefur haft mest að segja að góð vara spyrst út,“ segir Sigurður Halldórsson, stofn- andi og eigandi Spóns. Hestamenn þekkja flestir Feng undir nafninu Spónn en á vefsíð- unni sponn.is má finna allar upp- lýsingar um spóninn, framleiðslu hans sem og fyrirtækið. „Það var mestmegnis innflutt- ur spónn sem stóð hestamönnum til boða áður en við hófum fram- leiðslu okkar. Við fórum upphaf- lega að skoða þann möguleika þegar ljóst var hve mikið sá út- gjaldaliður hestamennskunn- ar hafði hækkað,“ segir Sig- urður. „Við skoðuðum hvort hægt væri að nota það timb- ur sem féll til í landinu og framleiða spón sem stæð- ist hæstu gæðakröf- ur en væri jafnframt ódýr. Vörubretti og afsagað hreint timbur stóðu þar til boða en þar til að við hófum endurvinnslu á hrá- efninu hafði timbrið verið urðað þar sem ekki hafði fundist farvegur til að nýta það.“ Fengur framleiðir nú bæði bundinn timburspón og spóna- köggla og framleiðslan nemur um tveimur tonnum á klukkutíma en íslenski spónninn er kominn inn í flest stærstu hestabúin á Suður- landi. Spóninn er einnig farinn að sjást í kjúklinga- og svínabúum. „Það má segja að spónninn hafi slegið í gegn. Varan hefur verið þróuð talsvert frá því að við hófum framleiðslu, þannig er hún nú ryk- hreinsuð, þannig að spónninn ertir ekki öndunarfæri dýranna. Einnig eru sótthreinsandi efni í spóninum sem heldur stíunum sótthreinsuð- um.“ Áhersla er lögð á að nota vist- væna orkugjafa til framleiðslunn- ar þar sem jarðgufan í Hveragerði nýtist vel til verksins. „Það má segja að þessi fram- leiðsla sé þannig bæði uppbyggileg fyrir þjóðarbúið og umhverfið. Við höfum náð að byggja upp nokkur störf í kringum reksturinn og við hvetjum fólk til að prófa vöruna sem hefur fengið meðmæli þeirra sem nota hana.“ Sótthreinsandi íslenskur spónn Framleiðsla Fengs er um tvö tonn af spóni á klukkustund. MYND/ÚR EINKASAFNI Hestar hafa verið mönnum yrkisefni frá ómunatíð, allt frá því að vera frjósemistákn og verndarar skáldskapar í boðbera dauðans, stundum í aukahlutverki og annars staðar aðalpersónur í sögum og seinna kvikmyndum. Efirfarandi eru nokkur dæmi hins síðarnefnda. Sagan um Fagra Blakk er sjálfsagt ein sú þekkt- asta og vinsælasta. Hún byggir á endurminning- um samnefnds hests, allt frá fyrstu árunum á fyrirmyndarbóndabæ og fram undir ævilokin í sveitasælu. Þess á milli er hann seldur milli bæja og upplifir til skiptis góðmennsku og harðræði. Bókin kom fyrst út árið 1877, nokkrum mánuðum áður en höfundurinn Anna Sewell lést eftir langvarandi veikindi. Síðan þá hefur sagan komið út í talsvert styttri útgáfu og nokkrar aðlaganir á henni hafa ratað á hvíta tjaldið. Annar svartur hestur og ekki síður frægur er Svarti folinn eða The Black Stallion í metsölubók Walt- ers Farley frá árinu 1941. Hún segir af arabísk- um gæðingi og drengnum Alec Ramsay sem verða strandaglópar á eyðieyju eftir að skip sem þeir voru farþegar á ferst. Þar læra þeir að treysta hvor öðrum og tengj- ast ævivarandi tryggðarböndum. Nokkrar sögur um Svarta fol- ann og afkvæmi hans fylgdu og fjölmargar kvikmyndir hafa verið gerðar eftir bókaflokknum, einna þekktust kvikmyndaaðlögun á þeirri fyrstu frá 1979. Sagan um Seabiscuit (The Story of Seabiscuit) byggir á sannsögulegum atburðum, fjallar um hálfblindan knapa sem kemst yfir hest sem virð- ist í fyrstu ólíklegur til afreka en verður loks einn fremsti veðhlaupa- hestur Banda ríkj- anna, þegar kreppan var í há- marki. Tvisvar hefur verið gerð kvik- mynd um hestinn Seabiscuit, fyrst árið 1949 og síðar 2003 með Jeff Bridges og Tobey Maguire í aðalhlutverkum og fyrrnefnd bók þá höfð til hlið- sjónar. Eilíft yrkisefni listamanna ● ÚR ORÐA- BÓKINNI Mörg orð eru til í íslensk- unni yfir hest svo sem: jór, drösull, farar skjóti, fákur, foli, gandur, gangvari, klár og mar. Útgefandi: 365 miðlar ehf., Skaftahlíð 24, s. 512 5000 Umsjónarmaður auglýsinga: Benedikt Freyr Jónsson benediktj@frettabladid.is s. 512 5411

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.