Barnablaðið - 01.09.1972, Page 2

Barnablaðið - 01.09.1972, Page 2
Abraham og Lot skipta löndum 1. Mós. 13, 5-12. Frásagan, sem við minnum á hér, segir okkur frá dásamlega góðum föðurbróður. Átt þú kannski líka góðan föðurbróður? Slíkan föðurbróður átti Lot, og hann hét Abraham. Abraham var maður ríkur, og það var Lot raunar líka. Þeir áttu margar kýr, uxa, sauði, geitur og úlfalda. Einnig áttu þeir allmarga asna. Þeir sem gættu allra þess- ara miklu hjarða, voru kallaðir hirðar. Einn dag sögðu fjárhirðar Lots við fjár- hirða Abrahams: — Farið burtu af þessari landareign, því að þetta beitiland þurfum við að hafa handa fénaði okkar, brunnarnir eru einnig okkar. Farið þið burtu! — Við höfum sama rétt á því að vera hér, sem þið, svöruðu fjárhirðar Abra- hams! Út af þessu varð mikil óánægja og deilur. Þegar Abraham komst að þessu, varð hann hryggur og sagði: — Heyrðu, Lot, ég vil ekki að það verði ófriður á milli okkar út af þessu. Landið sem við búum á, er nægilega stórt fyrir okkur báða. Við skulum skipta því á milli okkar. Kjósir þú þennan hluta landsins, þá tek ég hinn. Lot sá óðara að þetta var snjallræði. Og svo fór hann að virða allt landið fyrir sér, því að hann girntist auðugasta landið. — Ég kýs landið, sem liggur á þessa hönd, sagði Lot, og benti á hinar gróður- sælu sléttur niðri í dalnum, meðfram fljótinu. Til hinnar handar voru bara fjöll, sem brestur var bæði á góðu beitilandi og vatni. — Jæja, þá fer ég upp til fjallanna, sagði Abraham. Hann var göfugur maður, og sagði ekk- ert við því, þó að hann fengi í sinn hlut þann hluta landsins, sem var mikið verri. Lot mátti gjarnan fá betri hlutann. Guð mat það mjög við Abraham að hann breytti þannig. Og englar Guðs glöddust, því að þeir fylgjast með öllu. 2

x

Barnablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Barnablaðið
https://timarit.is/publication/670

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.