Barnablaðið - 01.09.1972, Blaðsíða 13
Hinn sanni kærleikur
— Ég elska þig, mamma, sagði Rut.
Svo kyssti hún mömmu sína á kinnina og
hljóp út til að leika sér. Hún hirti svo
ekkert um að gera það litla, sem mamma
hennar hafði beðið hana um.
— Ég elska þig, mamma, sagði Matti,
svo hljóp hann einnig út til að hitta fé-
laga sína Friðrik og Jens. Hann gleymdi
algerlega, að hann hafði lofað að búa um
rúmið sitt og taka til 1 herberginu og að
slá lóðina við húsið.
— Ég elska þig, mamma, sagði Jó-
hanna. Svo hjálpaði hún mömmu sinni
með uppþvottinn og hún hló og gerði að
gamni sínu á meðan þær tóku til í svefn-
herberginu. Þegar litli bróðir hennar fór
að gráta, lék hún við hann og reyndi að
hafa hann góðan, þar 1 iI mamma hennar
hafði tíma til að gefa honum að borða.
Hvert af þessum þremur börnum finnst
þér að hafi elskað mömmu sína mest?
Þau sögðu að vísu öll, að þau gerðu það.
Það er auðséð hvert af þeim gerði það,
það var Jóhanna. Hún sagði það ekki að-
eins. Hún gerði það einnig í verki. Það
er ekki erfitt að segja, ég elska þig. En
það eru verk okkar sem gefa til kynna
hvort við elskum í sannleika.
Þannig er það einnig með kærleika okk-
ar til Jesú. Veizt þú hvað hann sagði um
það? Sá sem elskar mig, mun varðveita
mitt orð. Það þýðir: Sá sem elskar mig í
sannleika, hann gerir það sem ég hef
sagt honum.
13