Barnablaðið - 01.12.1978, Qupperneq 5

Barnablaðið - 01.12.1978, Qupperneq 5
kaupa eitthvað handa Elsu. En ef hún keypli svolítið minna af bjúgum og keypti þá súkkulaðiköku fyrir afganginn? Nei, það var ekki rétt gagnvart mömmu. Það var heldur ekkert skemmtilegt að kaupa sér vináttu eða boð á jólatrésfagnað. Hún greikkaði sporið og brátt var hún komin að verslun Svensons. Hún gekk inn í búðina. „Hvað get ég gert fyrir þig?“ Þessi vin- gjarnlegi kaupmaður ljómaði alltaf eins og sólin. „Eitt kíló af bjúgum,“ sagði Þuríður og teygði sig til að sjá allt góðgætið bakvið glerið á búðarborðinu. „Gjörðu svo vel. Nokkuð fleira, ung- frú?“ sagði Svenson brosandi. Blóðið þaut fram í kinnarnar á „ungfrú“ Þuríði. Nú kom frú Svenson fram í búðina og með henni Beta, dóttir þeirra hjónanna. Beta kinkaði kolli til Þuríðar. En hvað hún á gott, hugsaði Þuríður. Hún má ganga um allt fyrir innan borðið og smakka á öllu góðgætinu, því að pabbi hennar ræður öllu hér. Að kaupmaður verður að kaupa sínar vörur, það hugsaði hún ékkert um. „Heyrðu,“ sagði Beta. „Yiltu koma í jólaboð til mín á laugardaginn? Það verð- ur svo skemmtilegt. Segðu já, góða Þura mín. Þú ert ekki boðin til Elsu líka?“ „Nei,“ sagði Þuríður. „Ég vil gjarnan koma. Þakka þér fyrir.“ Þuríður hljóp glöð heimleiðis. Henni var ómögulegt að ganga hægt. Hún var líka boðin út á laugardaginn. En hvað lá þarna á götunni? Lesbók? Alveg eins og hennar. Þuríður beygði sig og tók upp bókina. Elsa — A-bekkur II, stóð á fremsta blaðinu. Hafði Elsa týnt bókinni sinni? Þuríður leit í allar áttir, én engin Elsa var sjáanleg. Eitthvað datt úr bókinni. Það var kort, eins og stúlkurnar höfðu fengið og nafn Þuríðar skrifað á. Hafði Elsa þá ætlað að gefa henni eitt? Ef hún hefði fengið gjöf? Eða vildi hún bara stríða henni fyrst? Það var víst ekki um annað að ræða en fara með bókina til Elsu, þó skemmtilegt væri það ekki. Annars gat hún ékki lært lexíurnar sínar. En var það ekki rétt á hana? Nei, svona mátti hún ekki hugsa. Hún vildi fara með bókina til Elsu. En fyrst ætlaði hún heim. Þuríður stóð í forstofunni hjá Elsu og hringdi dyrabjöllunni. Móðir Elsu opnaði hurðina. Elsa stóð á bakvið hana. „Nei, ert það þú? Þú kemur þó ekki til að afþakka boðið á laugardaginn ? “ sagði móðir Elsu undrandi. „Nei, ég kem með bókina hennar Elsu. Ég fann hana á götunni.“ „Elsa, týndirðu bókinni þinni?“ sagði móðir hennar og leit ásakandi á dóttur sína. „Þetta var fallegt af þér, Þuríður mín,“ sagði hún og sneri sér að Þuríði. Elsa var niðurlút, þegar hún tók á móti hinni týndu bók og auðvitað datt boðs- kortið úr henni á nýjan leik. Móðir Elsu hafði snúið sér við til að ganga um. Hún tók því ekki eftir neinu. „Hérna, hérna, táktu við þessu,“ hvísl- aði Elsa. „Viltu fyrirgefa mér? Ég veit, að ég hef verið vond við þig, en viltu fyrir- gefa mér?“ sagði Elsa. „En ég hef enga gjöf handa þér,“ sagði Þuríður stillilega. „Það gerir ökkert til. Komdu bara, gerðu það. Annars verður allt svo leiðinlegt, góða Þura mín.“ „Ég skal segja þér, að ég er þegar boðin til Betu Svenson á horninu. Eg lofaði Betu áðan, að ég skyldi koma.“ Þuríður sá, að Elsa var bæði leið og skömmustuleg. En það var ekkert við því 5

x

Barnablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Barnablaðið
https://timarit.is/publication/670

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.