Barnablaðið - 01.04.1994, Blaðsíða 8
8 BARNABLAÐIÐ
'8JI SUIS})-! '8
jbuu|U}su>| u>|B}!puÁ9| - uuun>)sy '/
■jn>j!0|jæ>! 60 uoa ‘njx -g
'JBUUj
-jBH8}SEU>!æ| u>(Ei 6!UU!3 'uuiujjojib b
J!UU|UJ 6uois Bps !SS0J>) b uuunuuo66pH -g
jBUun(>(J!>! puÁuiu>|B) ja U!>(jq 'f
'J0LU ncj 6|Á) - )su» jbu>|B) piquJBi e
s)su» n6uo6
-jB|Sid B Jjuuiui nuouo>|!UJÁcj pauj ssoj» z
'BpUE UBÖBIISq JBU>|B1 UB)na ' L
í umhverfi okkar eru ótal tákn. Tákn geta
verið myndir sem gefa upplýsingar eða
miðla einhverjum boðskap. Allir þekkja
umferðarmerkin, en myndirnar á þeim segja
okkur hvernig við eigum að haga okkur í
umferðinni. Ef við þekkjum ekki táknin vitum
við ekki hvað við eigum að gera þegar við
sjáum þau. Ef umferðartáknin væru ekki til,
þyrfti að skrifa allar upplýsingar á skilti og
því gætu fylgt ýmis vandamál. Götuvitinn
væri þá kannski svona: í staðinn fyrir rauða
Ijósið stæði: Stop. í staðinn fyrir gula Ijósið,
stæði: Bíðið, en verið viðbúin og í staðinn
fyrir græna Ijósið stæði: Nú megið þið ganga
eða aka af stað.
Þetta væri erfitt fyrir útlendinga. Þeir gætu
ekki lesið fyrirmælin.
Til eru fleiri fræg tákn. Tákn fyrir vörur
sem eru umhverfisvænar. Tákn sem sýnir
okkur hvar er bannað að reykja. Tákn sem
sýnir okkur hvert við eigum að fara og svo
má lengi telja. Nú má víða sjá tákn fyrir ár
fjölskyldunnar. Þekkið þið það tákn? Þið
getið leikið ykkur að því að finna sem flest
tákn í umhverfi ykkar.
En hvernig datt mönnum í hug að fara að
búa sér til tákn?
Táknin urðu til löngu áður en fólk lærði að
lesa. Jafnvel löngu áður en stafirnir urðu til.
Já, og vel á minnst. Stafirnir eru líka tákn.
Hver stafur táknar ákveðið hljóð. Við röðum
hljóðunum saman og þau mynda orð.
Flest tákn eru teiknaðar myndir. Myndirnar
segja okkur kannski langa sögu. En til þess
að skilja táknin, þarf einhver að segja okkur
hvað þau merkja og jafnvel söguna á bakvið
þau.