Barnablaðið - 01.04.1994, Blaðsíða 10
10 BARNABLAÐIÐ
Ríki
bóndinn
Lúkas 12:16-21
Jesús sagði þessa dæmi-
sögu eitt sinn:
Einu sinni var bóndi sem var
mjög ríkur. Hann átti stórt og
gróðursælt land. Þar ræktaði
hann korn og alls konar ávexti.
Allt gekk honum í haginn. Korn-
ið óx og dafnaði og hvert tré
bar fjölda ávaxta. Hann fyllti
allar hlöður sínar af áxöxtum og
korni þangað til ekki komst
meira fyrir. Samt var enn heil-
mikið eftir úti á akrinum.
- Hvað á ég að gera? hugs-
aði ríki bóndinn. Hann horfði á
hlöðurnar sínar sem voru alveg
að því komnar að springa, þær
voru svo fullar. Nokkrir ávextir
höfðu oltið út úr þeim og lágu
nú fyrir utan dyrnar.
Ríki bóndinn tók eitt epli og
beit í það. Það var eldrautt og
gljáandi og gómsætt á bragðið.
Ríki bóndinn hugsaði og hugs-
aði.
Skyndilega fékk hann góða
hugmynd.
- Ég ríf þessar hlöður og
byggi mér aðrar stærri.
Bóndinn hófst þegar í stað
handa.
Þegar hann hafði rifið hlöð-
urnar og byggt aðrar stærri,
setti hann alla uppskeruna inn í
þær nýju og fínu. Svo fór hann
aftur út á akurinn og tíndi fleiri
ávexti og skar upp enn meira
korn. Svo kom hann heim með
marga vagna fulla af ávöxtum
og korni.
Ríki bóndinn fyllti stóru hlöð-
urnar.
Nú var hann glaður. Hann var
búinn að koma allri uppsker-
unni í hús og nú var ekkert eftir
nema að hvíla sig.
Ríki maðurinn lagðist í mjúkt
og hreint rúmið sitt og hann
sagði við sjálfan sig:
- Nú á ég mikinn auð til
margra ára. Ég get nefnilega
selt uppskeruna og fengið mikla
peninga fyrir. Ég þarf aldrei að
vinna handtak framar.
En Guð sagði við hann:
- Heimskingi, á þessari nóttu
verður sál þín af þér heimtuð
og hver fær þá alla peningana
þína?
Svona fer fyrir þeim sem
safnar sér fé, en er ekki ríkur
hjá Guði.
Texti og teikningar: E.J
Lestu söguna og svaraðu
spurningunum. Mundu að við
flestum þeirra er ekkert eitt rétt
svar. Dregið verður úr bestu
svörunum. Vinningshafar fá
óvæntan glaðning. Þeir sem
vilja geta litað myndina.
Sendið svörin til Barnablaðs-
ins. Utanáskriftin er:
Barnablaðið
Pósthólf 5135
125 Reykjavík