19. júní


19. júní - 19.06.1958, Blaðsíða 10

19. júní - 19.06.1958, Blaðsíða 10
Þórunn Jónasen Katrín Magnússon Bríet BjarnhéSinsdóttir Guðrún Björnsdóttir Kjörgengisréttm* reykvískra kveniia fimmtugur. í janúarmánuði síðastliðnum voru liðin 50 ár siðan konur tóku fyrst sæti í bæjarstjórn Reykja- víkur, en 1. jan. 1908 gekk í gildi breyting á til- skipun „um kosningar í kaupstaðnum Reykjavik“. 5. gr. þeirrar tilskipunar hljóðar svo: Kosningarétt hafa allir bæjarbúar, karlar og konur, sem eru fullra 25 ára að aldri, þegar kosning fer fram, hafa átt lögheimili í bænum eitt ár, hafa óflekkað mannorð, eru fjár síns ráðandi, eru ekki öðrum háðir sem hjú og ekki lagt af sveit, eða hafi þeir þegið sveitar- styrk, þá endurgoldið hann, eða verið gefinn hann upp, — svo framarlega sem þeir greiða skattgjald til bæjarsjóðs. Konur kjósenda hafa kosningarétt, þótt þær séu eigi fjár síns ráð- andi vegna hjónabandsins og þótt þær eigi greiði sérstaklega gjald í bæjarsjóð, ef þær að öðru leyti fylla áðurgreind skilyrði fyrir kosn- ingarrétti. Kjörgengur er hver sá, er kosninga- rétt hefur. Með lögum þessum var verulega aukinn réttur kvenna til kosninga og kjörgengis, þó að þær fengju ekki kosningarétt til alþingis fyrr en um það bil 8 árum síðar eða 19. júní 1915. En áður höfðu aðeins ekkjur og aðrar ógiftar konur, sem stóðu fyrir búi og voru 25 ára, kosningarétt og kjörgengi í hreppsnefnd, sýslunefnd, bæjarstjórn og á safn- aðarfundum. Kosningarétt fengu þessar konur árið 1882, en lcjörgengi ekki fyrr en 20 árum síðar eða 8 1902. Frumvarp til laga um kosningarétt kvenna, sem stóðu fyrir búi, var fyrst flutt á þingi 1881 og samþykkt ári síðar. Segja má, að mál þetta hafi verið auðsóttara en flest önnur réttindamál á þeim árum. öllu verr gekk með kjörgengið. Um það var t verið að þæfa næstum á hverju þingi um 10 ára skeið. Árið 1891 er flutt frumvarp til laga um kjör- gengi þeirra kvenna, sem þegar höfðu fengið kosn- ingarétt. Það frumvarp fer í nefnd, en dagar þar uppi. Árið 1893 er það aftur á ferðinni og er sam- þykkt á þingi, en fæst ekki staðfest hjá stjórn- inni. Vorið 1895 gengst Hið íslenzka kvenfélag fyrir því, að konur sendi alþingi svohljóðandi áskorun: Hér með leyfum vér undirritaðar konur oss að skora á alþingi, að það, þrátt fyrir synjun stjórnarinnar á lagafrumvarpi um kjörgengi kvenna í hreppsnefndir o. s. frv., samþykki frumvarp þetta á næsta alþingi og áfram, þangað til það nær staðfestingu. Þá æskjum vér og þess, að hinir háttvirtu þingmenn sam- þykki réttindakröfur þær oss til lianda, er frumvarp það fer fram á, sem ekki var full- rætt á alþingi 1893 um fjárráð giftra kvenna o. fl. — Um leið og vér þakksamlega viður- kennum réttindi þau, sem alþingi hefur þegar veitt oss, berum vér það traust til þess, að það framvegis eftir atvikum veiti oss allt jafn- 1 9. JÚNÍ
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

19. júní

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: 19. júní
https://timarit.is/publication/671

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.