19. júní


19. júní - 19.06.1958, Blaðsíða 20

19. júní - 19.06.1958, Blaðsíða 20
hörundslit og hára lit; konur í fornöld bundu sig ekki alltaf við einn lit. Eg held að nokkuð ljósblá föt með gylltum saum eða silfrsaum, eða rauð föt með gullsaum, gæti verið fögr; eða hvemig haldið þér að það liti út, að sjá brúði í fötum úr hvítu atlasksilki með gylltum ísaum; eg er viss um að það sæmdi einkar vel. Eða hvernig ætli þér að kona mundi sóma sér á brúðarbekknum, með fögrum möttli og fögru brúðarlíni við faldinn, ásamt með fögru koffri um ennið með blikandi laufum; eg er viss um að þetta allt væri miklu þjóðlegra og færi yðr nokkuð betr en „kapparnir“, eða hattarnir og „sjölin“, sem þér optast berið við slík tækifæri.“ Og enn segir hann um faldinn: „Sumir segja, að faldrinn sé ljótr, og ætlar þeim jafnvel að verða illt, ef þeir heyra hann nefndan; en allt fyrir þetta álít eg faldinn þó fagran. Hin gamla austrlenzka beygíng á honum hefir þau áhrif á andlitið, að sviprinn verðr hreinn og tignarlegr, og er það ein- kenni á mörgum íslenzkum konum, svo manni gæti komið til hugar, að Aþena væri þar komin með sinn grúfanda hjálmkamb, eða að fjallkonan sjálf, móðir vor, sýndi þar mynd sína á dætrum sínum, svipmikla og tignarlega.“ Elsa E. Guðjónsson tók saman. VETUR Nú ertu Esja köld á kinn og klaki á brúnum þínum, sólarylinn samt ég finn frá sumardögum mínum. Bráðum hœkkar blessuð sól og bráiðna vetrarsporin. Esjan mín fœr annan kjól og annan hatt á vorin. Guðrún Erlings. * STÖKUR Lœst í klaka landsins sál líf og gróður tefur þessi hin sjöttu sumarmál, sem þú lifað hefur. Þín er hlý og heiðrík sál, hvað sem snjónum líður. Þar eru sólskin, sumarmál, svipurinn hreinn og þýður. * öll sú fegurð, allt það Ijós, eyðir hverjum skugga, þar sem ilmar rauðust rós rétt við opinn glugga. * Á mín bernsku- og œskustig ótal hnigu tárin, en Ijöðin hafa lœknað mig, laugáð dýpstu sárin. Jóhanna Stefánsdóttir. * ÁRAMÓT Ertu glatað gengna ár, hvort græt ég þig á braut? Ef betur man ég bros en tár og betur gleði en þraut, minningin á marga gjöf á morgunglaðri stund, og langt um timans lygnu höf ég leita á hennar fund. Valborg Bentsdóttir. 18 1 9. JUNÍ
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

19. júní

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: 19. júní
https://timarit.is/publication/671

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.