19. júní


19. júní - 19.06.1958, Blaðsíða 16

19. júní - 19.06.1958, Blaðsíða 16
Eggert Ólafsson. Kvenbúningur (brúSarklæSi) frú síSari hluta 18.aldar. Þá búru konur húa krókfalda (trafafalda). leggjunum hér og hvar, og afmynda hinn fagra kvennlega vöxt með öllu móti. Fyrir hálskragann, eða höfuðdúkinn gamla, er kominn herðaklútr eða Hamborgar-„sj.al“, sem nær langt ofan á bak, og sem einúngis á við í kulda og regni, en ekki til skarts, cg fyrir hinn útsaumaða kyrtil eru komin kjólaslytti og pilz úr allskonar útlendri skræpu, sem hvorki er hald né skjól í; en fyrir hin fögru silfrbelti höfum vér fengið silki- og klæðisbönd, sem bæði eru ónýt og verðlaus. Auk þess gjöra margir víða um landið sér að skyldu að eyða öll- um gömlum silfrbeltum og öðru kvennsilfri, hversu merkilegt sem er, en láta gullsmiðina bræða upp brjóst- og herðaskildina, festarnar, koffrin, laufa- prjónana, ermahnappana, og allt þar að lútandi, eða þeir senda það til útlanda, af því það þykir þar merkilegt, en sjálfar fyrirverða konurnar sig að bera það“. Sigurði er lítt gefið um viðleitni samtíðarkvenna sinna að fylgja erlendri tízku: „Það er illt og bros- legt, að sjá, þegar menn koma í sveitakirkju á fs- landi, og mikið er haft við;-------í sömu kirkj- unni er kvennfólk með allskonar höfuðbúnínga og allskonar fatasnið, svo manni gæti dottið í hug að maðr væri kominn á grimudans. Sumar bera „kappa", sem þær hafa þreytt hugvit sitt á að skreyta með allskonar börðum, beiglum og út- klipptum sepum, svo þetta lítr út sem merkileg- asta þöngulhöfuð. — —----Aðrar hafa hatt á höfði með stóru skygni, sem stendr fram og upp af höfð- inu, miklu meira en nokkur hjólmgríma, með tveimr klóm á kollinum, sem ógna tveim himins- óttum. Hefði tJlfljótr, hinn gamli löggjafi fslend- inga, lifað, þá hefði hann bannað að sigla að landi með slíkum höttum, svo landvættir fældist þá ekki. Þetta halda menn að sé meira háttar og fagrt; þetta halda menn að útlendum liki, en því fer fjarri, einmitt að þessu hlægja þeir, og munu marg- ir hafa heyrt það, sem samgöngur eiga við þá; þeir eru líka vísir til að setja það i ferðabækr sinar, sem dæmi uppá heimsku manna og skrælingja- hátt, því ekki er þetta svo gott, að þetta geti heitið danskr eða neinna kristinna manna búníngr, heldr er það því líkast sem Skrælingjar gera, og aðrar villiþjóðir, sem kaupa sína flíkina af hverri þjóð- inni, fara í skyrtuna yzta klæða, og setja skinn- sokka eða stígvél á höfuð sér .... Það sætir undr- um, að hvergi held eg sé að tiltölu eins blind eptir- öpun í búníngum eins og á íslandi;-----------og er þetta því meiri furða, sem íslendíngar eiga fegri þjóðbúníng en flestar aðrar þjóðir. í flestum lönd- um lætr bændafólk sér nægja að bera sinn eigin þjóðbúníng. — — — og þó það fyndist nú, að ein- hver þjóð apaði eptir búningum og siðum i blindni og umhugsunarlaust, þá er það samt Íslendíngum viðvikjandi því óþjóðlega, óhaganlega og ófagra við þennan búníng eins og hann nú er.----------- en það er ekki nóg að sjá gallana á honum eins og hann er, eða að játa, hversu hann er í marga staði hlægilegr og í alla staði ósamboðinn og óhæfilegr 14 19. JÍTNÍ
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

19. júní

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: 19. júní
https://timarit.is/publication/671

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.