19. júní - 19.06.1958, Qupperneq 20
hörundslit og hára lit; konur í fornöld bundu sig
ekki alltaf við einn lit. Eg held að nokkuð ljósblá
föt með gylltum saum eða silfrsaum, eða rauð föt
með gullsaum, gæti verið fögr; eða hvemig haldið
þér að það liti út, að sjá brúði í fötum úr hvítu
atlasksilki með gylltum ísaum; eg er viss um að það
sæmdi einkar vel. Eða hvernig ætli þér að kona
mundi sóma sér á brúðarbekknum, með fögrum
möttli og fögru brúðarlíni við faldinn, ásamt með
fögru koffri um ennið með blikandi laufum; eg er
viss um að þetta allt væri miklu þjóðlegra og færi
yðr nokkuð betr en „kapparnir“, eða hattarnir og
„sjölin“, sem þér optast berið við slík tækifæri.“
Og enn segir hann um faldinn: „Sumir segja,
að faldrinn sé ljótr, og ætlar þeim jafnvel að verða
illt, ef þeir heyra hann nefndan; en allt fyrir þetta
álít eg faldinn þó fagran. Hin gamla austrlenzka
beygíng á honum hefir þau áhrif á andlitið, að
sviprinn verðr hreinn og tignarlegr, og er það ein-
kenni á mörgum íslenzkum konum, svo manni
gæti komið til hugar, að Aþena væri þar komin
með sinn grúfanda hjálmkamb, eða að fjallkonan
sjálf, móðir vor, sýndi þar mynd sína á dætrum
sínum, svipmikla og tignarlega.“
Elsa E. Guðjónsson tók saman.
VETUR
Nú ertu Esja köld á kinn
og klaki á brúnum þínum,
sólarylinn samt ég finn
frá sumardögum mínum.
Bráðum hœkkar blessuð sól
og bráiðna vetrarsporin.
Esjan mín fœr annan kjól
og annan hatt á vorin.
Guðrún Erlings.
*
STÖKUR
Lœst í klaka landsins sál
líf og gróður tefur
þessi hin sjöttu sumarmál,
sem þú lifað hefur.
Þín er hlý og heiðrík sál,
hvað sem snjónum líður.
Þar eru sólskin, sumarmál,
svipurinn hreinn og þýður.
*
öll sú fegurð, allt það Ijós,
eyðir hverjum skugga,
þar sem ilmar rauðust rós
rétt við opinn glugga.
*
Á mín bernsku- og œskustig
ótal hnigu tárin,
en Ijöðin hafa lœknað mig,
laugáð dýpstu sárin.
Jóhanna Stefánsdóttir.
*
ÁRAMÓT
Ertu glatað gengna ár,
hvort græt ég þig á braut?
Ef betur man ég bros en tár
og betur gleði en þraut,
minningin á marga gjöf
á morgunglaðri stund,
og langt um timans lygnu höf
ég leita á hennar fund.
Valborg Bentsdóttir.
18
1 9. JUNÍ