19. júní


19. júní - 19.06.1961, Blaðsíða 5

19. júní - 19.06.1961, Blaðsíða 5
Olöf ríka Loptsdóttir Erindi flutt í Hítsmœðraskólanum á Hallormsstað á konudaginn9 fyrsta sunnudag í góu, 1936. Það má vel vera, að kona sú, er ég ætla að tala um í dag, sé ekki beztur fulltrúi þeirra kvenna, er þessi dagur hefur lilotið nafn af, nefnilega ís- lenzkra húsfreyja eins og þær gerast almennt eða hafa gerzt út um byggðir landsins, húsfreyjanna, sem unnið hafa hin hljóðlátu störf þjóðfélagsins, störf heimilisins, innanbæjarstörfin, sem engin saga hefur verið skráð um, en eru þó ef til vill engu að síður mikilvæg einstaklingnum en þau störf, er hærra er látið um. Þessi kona er ein hinna fáu kvenna í sögu Islands á miðöldum, er getið er í sögum og árbókum þeirra tima, og það þarf ekki að vera af því, að hún hafi verið neitt betri kona en almennt gerist, heldur af því, að hún er riðin við ýmsa atburði síns tíma, þ. e. atburði, sem hafa verið færðir í letur. Hún er einnig að því leyti nokkuð sérstæð, að hún er með ríkustu og tignustu konum þessa lands á sinni tíð, 15. öldinni. En það, sem helzt kom mér til að minnast þess- arar konu hér í dag, er kvæðaflokkur sá, er dr. Jón Þorkelsson hefur ort um hana. Enginn Islend- ingur hefur lagt jafnmikla stund á að kynna sér sögu islands á þeim öldum, sem myrkastar eru og minnstar heimildir eru til um, það er að segja 15. og 16. öld, eins og Jón Þorkelsson. I þeirri rann- sókn hlaut hann að rekast á Ólöfu Loptsdóttur, því að bæði hana og alla vandamenn hennar ber hátt í hinum dreifðu og óljósu sögnum þessa tíma- bils nærri því eins og fjallstinda upp úr þokuhafi. Eins og kunnugt er, hefur aldrei verið aðall hér á íslandi, þ. e. menn með ein eða nein forréttindi eða yfirráð yfir öðrum mönnum. Að þessu leyti greinir saga Islands á miðöldum sig algerlega frá sögu annarra þjóða álfunnar. Sumir hafa haldið því fram, að þetta hafi veikt landsmenn út á við, Sigrún Blöndal en þá er og jafnvist, að það hefur hjálpað til að halda við og ala á því jafnrétti og einstaklings- frelsi, sem framar öðru hefur einkennt íslenzkt þjóðlíf frá fyrstu tíð. Þetta ber þó ekki að skilja svo, að ekki hafi verið höfðingjar á Islandi fyrr og siðar. Hér hefur ekki fremur en annars staðar allt fólk verið jafnt í þeim skilningi, að ekki hafi einn ver- ið öðrum framar að manndómi, vitsmunum og höfðingslund, og þetta íslenzka jafnrétti hefur held- ur ekki getað varnað því, að á öllum öldum hafi ekki safnazt auður á fárra manna hendur, sem bæði gerði það að verkum, að sumir menn fengu betra tækifæri til að njóta hæfileika sinna og um leið að komast til meiri valda og metorða en aðrir. Þannig var þessu háttað á 15. og 16. öld ekki síður en nú. I3að mun sanni næst, að aldrei hafi verið meiri né voldugri höfðingjar á Islandi en einmitt á þessu timabili. Ekki er gott að fullyrða um, hvað valdi. Sumpart liklega fátækt og menntunarskort- ur alls almennings og sumpart auðsöfnun einstakra manna, sem að einhverju leyti var að kenna miklu mannfalli í plágum og hættulegum farsóttum, er geisuðu á landi hér 1402 og 1492. Meðal þeirra höfðingja, sem mest ber á á 15. öld, eru Ólöf Loptsdóttir og maður hennar Björn Þor- leifsson. Með giftingu þeirra sameinast tvær hinar auðugustu og beztu ættir á Norður- og Vesturlandi. 19. JtJNl 3
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

19. júní

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: 19. júní
https://timarit.is/publication/671

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.