19. júní


19. júní - 19.06.1961, Síða 25

19. júní - 19.06.1961, Síða 25
munu verða gerðar til hvors tveggja, fólks við safn- störf og við kennslu í skólum. Laun forstöðumanna fyrir héraðsbókasöfnum og bæjarbókasöfnum munu verða lík og forstöðu- mannslaun í gagnfræðaskólum á hverjum stað. Þótt sá jöfnuður náist ekki jafnfljótt alls staðar á landinu, stefnir ört í áttina. Laun aðstoðarfólks í bókasöfnum miðast að nokkru við launakjör barnakennara, en að nokkru við launakjör venju- legra skrifstofustúlkna. Það verður að vera kappsmál hins nýstofnaða bókavarðafélags að halda uppi allströngum mennt- unarkröfum í stéttinni, meðal annars til að hindra undirboð kauplágs vinnukrafts, þeirra, sem fátt gætu annað unnið en stunda snúninga innan bóka- safns. S. J. M. Félagsmálar&ðunauÉur. Síðustu áratugina hefur smám saman myndazt ný stétt manna víða um heim. Á ensku er hún nefnd socialworkers, á norðurlandamálum social- arbejder, socialhjælper og ýmislegt fleira. Á islenzku hefur hún hlotið nöfn eins og félags- málaráðunautar, félagsfræðingar og ármenn, enda getur starfið verið með ýmsum hætti. Fólk þetta er tengiliður milli þeirra, er þurfa á aðstoð að halda, og sjúkrahúsa og félagsmálastofnana, sem geta veitt hjálp. Vísir að þessari starfsemi er þegar hafinn hér á landi. Þar sem alls staðar hefur komið í ljós, að mikið gagn er að henni og starfið sérstaklega við hæfi kvenna, þótti okkur rétt að flytja lesendum okkar eitthvað nánar um hana, og snerum okkur því til Guðrúnar Jónsdóttur félagsmálaráðunauts. „Hvar stunduðuð þér nám?“ „Við Socialinstitut í Gautaborg, sem er deild við háskólann þar og heyrir undir stjórn hans. Þessi skóli hefur starfað 13—14 ár. Námstíminn er 2j/2 ár, og er kennslan ókeypis. Bóklegt nám hefst í septemberbyrjun og stendur fram i júníbyrjun, en yfir sumarmánuðina útvegar skólinn nemend- unum vinnu við ýmiss konar félagsmálastofnanir, og er það liður í náminu. Kennd er hagfræði, stjórnskipunarsaga og gildandi lög, er snerta fé- lagsmál, eins og t. d. framfærslulögin. Einnig er kennd heilsufræði og alls konar varúðarráðstafanir gegn sjúkdómum og framkvæmd heilbrigðisráð- stafana i borg og bæ. Mikil áherzla er lögð á sál- arfræði, og greinist hún í þrennt: bamasálarfræði, almenna sálarfræði, þ. e. áhrif umhverfisins á ein- staklinginn, og læknisfræðilega sálarfræði, sem fjallar um, hvaða áhrif líffærastarfsemin hefur á sálarlífið. Aðaláherzla er lögð á að kenna félagsfræði og sálarfræði. Félagsfræðin víkur m. a. að viðbrögð- um mannsins gagnvart því þjóðfélagi, sem hann lifir í, og hvernig hann tekur þeim áhrifum, sem menn óhjákvæmilega verða fyrir í samfélagi við aðra, t. d. áróðri og múgsefjun. Námstímanum lýk- ur í janúarmánuði á þriðja ári. Þá eiga nemend- ur að skila prófritgerðum í þremur námsgreinum eftir frjálsu vali. Þó er sálarfraÁin skyldugrein, "'cr er þá talið nauðsynlegt, að nemandinn hafi les ið fleiri bækur um sálarfræði en þær, sem kennd- ar eru í skólanum. Bóklega kennslan fer eingöngu íxam í fyrirlestrum.“ ..Hvaða undirbúningsmenntun þurfa nemendu’ að hafa?“ „Af útlendingum er krafizt stúdentsprófs í Sví- þjóð, en Svíar geta tekið sérstakt inntökupróf, e\ þeir hafa ekki stúdents- eða kennarapróf.“ „Onnur inntökuskilyrði?“ „Aldurstakmark er 21—35 ár. Einnig verða væntanlegir nemendur að hafa unnið eitt ár við einhverja félagsmálastofnun. Ég var búin að vinna við Tryggingarstofnun ríkisins og á barnaheimili.11 „Við hvaða stofnanir fer kennslan fram að sumr- inu?“ „Barnaverndarnefndir, áfengisvarnanefndir, fangelsi, almenn sjúkrahús og geðveikrahæli eru helztu stofnanir, sem um er að ræða. Svo hafa ýmis stór fyrirtæki, svo sem vei’ksmiðjur, ráðu- 19. JtJNl 23

x

19. júní

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: 19. júní
https://timarit.is/publication/671

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.