19. júní


19. júní - 19.06.1961, Síða 30

19. júní - 19.06.1961, Síða 30
„Þér nefnduð einnig raddgalla?“ „Sumir þeirra eru fyrst og fremst líkamlegs eðlis, svo sem nefmæli, þegar um holgóma sjúkl- ing er að ræða, og hæsi, sem stafar af göllum á raddböndum.“ „1 hverju er sjálf talkennslan aðallega fólgin?“ „Talkennarinn verður ævinlega að hafa hug- fast, að talkennslan er alltaf einstaklingsbundin og hverjum hæfir sitt. Hann verður að leita að orsök talgallanna og vinna út frá henni. Algengt er, að sjúklingur komist fljótlega yfir stamið í tal- tímum, en síðan sæki í sama horfið í daglegu lífi. Þá verður að fylgja eftir hinum nýfengna hæfi- leika sjúklingsins til að tala eðlilega, svo að hann haldist jafnt, þótt eitthvað bjáti á. Kennslan fer fram í alls konar talæfingum og samræðum, sem miða að því að gera sjúklingnum kleift að skilja og leysa úr vandamálum sínum. Bezt er, að sjúklingurinn njóti talkennslu daglega, ef árangur á að nást, einkum fyrri hluta kennsl- unnar. Stytzti kennslutíminn er 2—3 mánuðir, ef um smávægilegan galla er að ræða, en fullum ár- angri er oft ekki náð nema á einu til tveim árum. Og stundum verðum við að horfast í augu við þá staðreynd, að ekki er hægt að veita sjúklingnum bót. í vetur hef ég kynnt mér skóla úti á landi. Sennilega er um 2—3% skólabarna með talgalla. Þegar skólum lýkur í vor, á ég von á fáeinum þeirra suður í talkennslu. Áhugi fyrir talkennsl- unni virðist vera mikill, og var mér hvarvetna vel tekið bæði meðal kennara og foreldra. Þörf sérmenntaðra talkennara er mikil. Ég mundi hvetja konur til að kynna sér þessa starfs- grein. Reynslan í öðrum löndum sýnir, uð starfið lætur konum vel. Þar fær aðlögunarhæfileiki þeirra notið sín í óteljandi og margbreytilegum myndum." G. P. H. Alþjó<fakvenréttindafélagi«$ heldur 19. alþjóðafund sinn í Dublin i sumar, og stendur hann frá 21. ágúst til 2. sept. K.R.F.I. á rétt á að senda þangað 12 fulltrúa og aðra 12 til vara, svo að nú er tilvalið tækifæri fyrir ís- lenzkar konur að kynnast þessum merkilegu fé- lagssamtökum, þar sem svo skammt er að fara, írland rómað fyrir náttúrufegurð og þjóðin fyrir gestrisni. Tannlæknir. Frú Guðrún Gísladóttir er fyrsti tannlæknir hér á landi, sem lagt hefur stund á og lokið prófi í „Periodontia“. „Hvað er þessi grein tannlækninga kölluð á íslenzku?“ „I Háskóla íslands er hún kölluð tannholdssjúk- dómafræði." „1 hverju eru lækningar á þessum sjúkdómum fólgnar?" „Fyrst og fremst í því að fyrirbyggja tannlos og jafnframt festa tennur, sem þegar eru farnar að losna, með því að lækna alls konar bólgur og ígerðir við tannrótina, sem margvíslegir sjúkdóm- ar geta stafað af, ef ekki er ráðin bót á, svo sem liðagigt, nýrnabólgur, hjartasjúkdómar o. fl.“ „Hver er algengasta orsök tannlossins?" „Algengustu orsakirnar eru vafalaust staðbundn- ar, svo sem tannsteinsmyndun og röng tannburst- un. Ennfremur geta allir sjúkdómar, sem fyrir koma í likamanum, átt sinn þátt í sjúkdómum i tannholdinu. Einnig getur skortur á bætiefnum í fæðunni dregið úr mótstöðuafli slímhúðarinnar og stuðlað um leið að sýkingu í bandvef og beinum.“ „Er þetta sérnám í sambandi við tannlækning- ar almennt eða er það sjálfstætt starf, sem ekki krefst tannlæknaprófs?“ „Það er sérnám eftir tannlæknanámið, sem er 6 ár hér við háskólann, og er þar með talin bók- leg undirstöðukennsla í periodontia." „Er þessi grein tannlæknisfræðinnar ný af nál- 28 19. JONl

x

19. júní

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: 19. júní
https://timarit.is/publication/671

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.