19. júní


19. júní - 01.10.1994, Síða 4

19. júní - 01.10.1994, Síða 4
að vakti mikla athygli þegar fyrstu lögreglukonurnar voru ráðnar til starfa fyrir rúmum tuttugu árum. Þær voru ráðnar til að gegna sömu störfum og karlarnir og jafnvel taldar nauð- synlegar til að fjalla um við- kvæm kærumál á sviði kynferðis- brota gegn konum og börnum og ofbeldi innan veggja heimilisins. En hver hefur reynslan verið? Lögreglukonur eru ekki sáttar við stöðu sína, þeim finnst að sérþekking þeirra og reynsla fái ekki að njóta sín innan lögreglunnar og gagnrýna meðferð mála þar sem konur og börn eru þolendur, svo sem varðandi heimilisofbeldi og kynferðisbrot. Skýrslur um þessa málaflokka séu oftar en ekki látnar rykfalla í skúffum. Margar lögreglukonur hafa því hætt störfum, einkum eftir barnsburð, þar sem vinnuálag er mikið og ekki hægt að fá hlutastöður. Hinar fá ekki stöðuhækk- anir og sitja því áfram í lægst launuðu störfun- um. Þeim konum, sem rætt er við hér á eftir, hef- ur öllum verið synjað, hverri á sínu sviði. Ein hefur verið færð til innan RLR í hálfgert sendil- starf önnur fékk ekki starf innan RLR þrátt fyrir sérþekkingu sem hún hefur aflað sér erlendis og sú þriðja er atvinnulaus eftir að hafa verið boðið starf við ræstingar. Lögreglukonurnar gagnrýna einnig meðferð mála varðandi heimilisofbeldi, ofbeldi gegn börnum og nauðgunum. Dóra Hlín Ingólfsdóttir rannsóknarlögreglu- kona telur nauðsynlegt að fjölga konum innan lögreglunnar og auka sérþekkingu í þessum mála- flokkum til að hægt sé að vinna gegn þessum glæpum á markvissan hátt. Hún segir einnig að nýjasta stöðuveiting RLR sýni að engar áherslur séu innan embættisins til að rannsaka þá glæpi er snúi að kynferðisbrotum gegn börnum! En gefum Dóru Hlín orðið: Texti: Valgerður Katrín Jónsdóttir Myndir: Rut Hallgrímsdóttir og fleiri 4

x

19. júní

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: 19. júní
https://timarit.is/publication/671

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.