19. júní


19. júní - 01.10.1994, Blaðsíða 9

19. júní - 01.10.1994, Blaðsíða 9
um ofbeldi sem ókunnugir beita börn og hins vegar þar sem ofbeldi er innan fjöl- skyldunnar. Eg vann með síðarnefndu deildinni og fekk að fylgjast með öllu, yfirheyrslum með börnum og brotamönnunum. Áhersla er lögð á að komast að brotamönnunum með samúð en ekki hörku og yfirleitt skilar sú leið góðum árangri, mennirnir brotna niður og segja frá. Frá Dallas fór ég til Nashville Tennessee og var í viku á svipaðri deild. Þetta var ótrúlega lærdómsríkt, ég fékk að fara með lögreglumönnunum í heim- sóknir, m.a. var grunur um að tvær systur, 12 og 14 ára, væru misnotaðar. Sú eldri hafði farið í tvær fóstureyðingar, mamma hennar vissi af þeim en stúlkan hafði sagt henni að hún hefði verið barnshafandi eftir vin sinn. 1 ljós kom að hún hafði orðið barnshafandi eftir föðurinn og við fórum heint til þeirra til að segja móðurinni frá því. Þetta var ósköp venjulegt heimili, þrifalegt og smekklegt. Við sögðum móð- urinni að það hefði verið faðirinn sem hefði barnað dótturina og grunur léki á að hann hefði einnig misnotað yngri dóttur- ma. Móðirin trúði okkur ekki, hún hafði ekki hugmynd um þessa kynferðislegu rnisnotkun, sagði að maður sinn væri þvert a móti mjög góður faðir. Hún fraus alveg — Hve rnargar konur eru í lögreglunni í dag? „Ég get ekki svarað því. Eg held ég verði að vísa þér til Dómsmálaráðuneytisins, þar er yfirstjórn lögreglunnar í landinu." - Eru konur hvattar til starfa hjá lög- reglunni og hvernig þá? „Ég reikna fastlega með því en eins og ég segi þér þá er lögreglan í landinu undir stjórn dómsmálaráðherra og yfirstjórnin er 1 Dómsmálaráðuneytinu svo ég held þú sert að spyrja mig spurninga sem þú ættir að beina til dómsmálaráðherra eða Dóms- málaráðuneytisins sem fer með yfirstjórn lögreglunnar. Það er ekki ríkislögreglu- stjóraembætti á íslandi, ríkislögreglustjórn- ln er þar. Þessar spurningar eiga ekki heima hér hjá mér, finnst mér.“ — En er eitthvað gert hér til að hvetja konur til að sækja um störf? fyrst í stað, en brotnaði svo saman. Við sögðum henni að hún þyrfti að fara af heimilinu ásamt dætrunum og sögðurn henni hvað það væri auðvelt að fela þessa atburði innan fjölskyldunnar. Ég er ekki í vafa urn að það eru ótal mörg dæmi um slíka misnotkun hér á landi sem komast ekki upp. Brol á tilkyiiningaskyldu barnalaganna Þær starfsstéttir í Bandaríkjunum sem hafa með börn að gera eru miklu betur upplýst- ar en hér heima og bregðast þar af leiðandi fyrr við ef grunur er á ofbeldi innan fjöl- skyldunnar. Þannig fylgdist ég t.d. með því er 9 ára drengur kom í skólann með glóð- arauga og skólastjórinn fékk félagsráðgjafa og rannsóknarlögregluþjón til að koma í skólann og tala við barnið. Drengurinn var fyrst mjög kaldur og vildi ekkert segja, sagðist bara hafa rekið sig á hurð. Svo kom í ljós að hann var að hjálpa mömmu sinni, pabbinn hafði ráðist á hana og hann gekk á milli. Drengurinn grét og grét þegar hann sagði frá þessu og honum var komið á stað þar sem honum leið betur, til ömmu sinnar. Heimilisofbeldi er félagslegt vandamál og það þarf að taka á því á viðeigandi hátt. „Þetta er fyrst og fremst málefni Dóms- málaráðuneytisins, ég býst við að einstakir lögreglustjórar og þar með við hér. . . ja, sækja um. . . fólk þarf að ganga í gegnum lögregluskólann til að fá vinnu hér eins og þú kannski veist. . . - En er æskilegt að hafa kvenlögreglu- þjóna? Nú eru ekki nema um 20 ár síðan fyrstu kvenlögregluþjónarnir tóku til starfa. . . „Ég held það sé æskilegt eins og í öllum öðrum störfum." — Ættu konur að sinna sérstökunt störf- um í lögreglunni, eða ætti enginn slíkur mismunur að ríkja? „Það er ábyggilega hægt að gera ein- hvern mun þar á, hafa verkaskiptingu eins og í öllu öðru, en að svara því svona án at- hugunar og eldsnöggt, ég treysti mér ekki til þess.“ Hér á landi finnst mér fólk vera of lokað fyrir þessu og vilja lítið gera í málunum. Það þarf að auka fræðslu til kennara og fóstra þannig að hægt sé að losa um þann sársauka sem fylgir fjölskylduofbeldi og vinna við forvarnir, kenna börnunum hvað sé eðlileg snerting og hvað ekki, kenna þeim að bera virðingu fyrir Iíkama sínum. Ég fékk styrk frá Dóms- og Félagsmála- ráðuneytinu til að fara í þessa fjögurra vikna ferð til Bandaríkjanna, bað um launalaust leyfi en fékk það ekki, svo ég samdi um vinnuskipti við félaga mína í staðinn. Styrkirnir dugðu ekki fyrir nerna broti af þeim kostnaði sem fylgdi ferðinni. Ég hef því aflað mér þessarar þekkingar á eigin kostnað, meðan ýmsir starfsmenn fá greidda styrki og kostnað við slíkar náms- ferðir. Ég held að umræða um þessi mál sé til alls fyrst til að uppræta ofbeldi gegn börn- um og heimilisofbeldi. Það þarf einnig að gera börn meðvituð um rétt þeirra yfir eig- in líkama og fræða fólk í uppeldisstéttum þannig að það sé betur vakandi yfir ofbeldi gegn börnum. Ef ekki er brugðist við þá er verið að brjóta tilkynningaskyldu barnalag- anna. Síðan þarf að koma upp heimili á vegum RLR þar sem börn eru tekin í við- töl en slík barnaheintili eru rekin með góð- um árangri víða í Bandaríkjunum. — Það hafa sumir haldið því fram að það sé betra að nota konur í sum störf en karla, einkum varðandi rannsóknir ofbeldismála og kynferðisbrota. „Það hefur verið talið æskilegt að hafa konur tiltækar, í öllu fah: varðandi kyn- ferðisbrotamál. En með n ekki eru fleiri í lögreglunni en raun ber vitni þá væri í öllu falli einhver sem væri hægt að kveðja til ef kona óskar sérstaklega eftir því að ræða við konu. 1 reglum okkar er gert ráð fyrir slíku og það held ég að sé æskilegt.“ - Njóta konur sömu skilyrða til stöðu- og launahækkana og karlar? Hvernig stendur á því að svo fáar konur eru í stöð- um yfirmanna eins og raun ber vitni? „Mér finnst þú alltaf vera að spyrja mig spurninga sem eiga við Dómsmálaráðu- neytið, ég hef ekkert með stöðuhækkanir að gera, nema það að ég get gert tillögur. Dómsmálaráðherra skipar Iögreglumenn og yfirmenn, að vísu fær hann ábendingar frá lögreglustjórunum en við ráðum þessu ekki.“ — En nú eru mjög fáar konur yfirmenn innan lögreglunnar, kanntu einhverja skýr- ingu á þessu? „Nei. Það kann ég ekki. Það eru starf- andi tvær konur hér hjá okkur í Rann- sóknarlögreglunnni það er engin sérstök skýring í sjálfu sér. En mjög fáar konur hafa sótt um störf hér.“ Hvað segja lögregluyfirvöld um stöðu lögreglukvenna? Hér fer á eftir viðtal blaðamanns 19. júní við Boga Nilsson rannsóknarlögreglustjóra. 9

x

19. júní

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: 19. júní
https://timarit.is/publication/671

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.