Sólskin - 01.07.1930, Qupperneq 65
Eftirmáli.
Sólskin er gjöf frá Sig. Júl. Jóhannessyni til Barnavina-
félagsins Sumargjöf. Félagið þakkar gjöfina. Margar og miklar
gjafir hafa því borizt, en engin kærkomnari en þessi. Ekkert ís-
lenzkt skáld mun hafa kveðið jafn mörg ágæt barnaljóð og Sig.
Júl. Jóhannesson. liefir hann bætt úr brýnni þörf, þvi að mitt í
Ijóðaauðlegð okkar erum við fremur fátækir að Ijóðum við barna
hæfi, einkum hinna yngri. En hver, sem lærir mikið af fögrum
Ijóðum í barnæsku, skilur þau, virðir og elskar, er maður að
meiri og betri. Pá er létt að læra, og það, sem þá lærist, verður
ævarandi eign, þótt önnur leikföng glatizt. Þvi er vert að vanda
valið. Með Ijóðunum læðist inn andi þeirra og mótar siðferðis-
lifið. Pað tel ég með aðalkostum þessarar bókar, að mannúð og
ást á hinu fagra og góða er hér uppistaða, og fjölmörgu er þar
ofið inn í, sem börnum verður hugstætt og hjartfólgið.
í þessari bók er aðeins helmingur Ijóðanna; það, sem ópreniað
er, gefur félagið út síðar, í öðru hefti.
Allur ágóði af sölu þessarar bókar rennur í sjóð Darnavina-
félagsins Sumargjöf.
Fyrir hönd Sumargjafar.
Steingr. Arason,
(formaður).