Sameiningin

Árgangur

Sameiningin - 01.04.1886, Síða 9

Sameiningin - 01.04.1886, Síða 9
—25 sína Vastí í einni svipan frá sér fyrir það eitt, að hún vildi ekki sýna fegrS sína öllum hans fjölmenna veizluskara, og þá ekki síSr hitt, að gefa allt í ciriu, orsakalaust, út skipan um það, að allir Gyðingar slcyldi strádrepnir í ríki lrans, til þess að þóknast Haman (Aman) gœðingi sínum. Ester hét eiginlega Hadassa á tungu feðra sinna. Meðal Persa fékk hún nafn- ið Ester. það fór um hin hebresku nöfn í vistarveru jreirra austr í Babylon, Súsan o. s. frv., eins og' um nöfn margra Is- lendinga í Ameríku. Vór munum, hvernig nafni Daníels var breytt og vina hans. Ester, sem á ungum aldri hafði misst bæði föður og móður, var alin upp af frænda sínum Mardokeus eða Mardokaí. Feðr þeirra voru brœðr, og hafði ati þeirra brœðra verið herleiddr ásamt Jrtjakin eða Jekónía konungi frá Jerú- salem til Babylonar arið 599. Fóstri hennar og frændi liafði komizt til tignar-stöðu við hina persnesku hirð í Súsan. þá er Haman var fallinn, varð Mardokaí aðal-ráðgjati konungs í hans stað. Griskr rithöfundr, Ktesías að nafni, getr greðings eins hjá Xerxes Persakonungi, sem hann kallar Matakas eða Natakas, og bendir sumt af því, er um hann er sagt, á, að hann sé enginn annar en Mardokaí, enda er hvorttveggia nafnið líklega eitt og hið sama. Herodót, hinn nafnfrægi söguritari, segir frá því, að á 3. stjórn- arári Xerxes konungs hati hann haldið samkomu mikla út af undirbúningnum undir herförina alkunnu gegn Grikkjum. Veizl- an, sem frá er sagt í 1. kap. Estersbókar, ]rá er konungr rak Vastí drottning frá sér, var haldin á 3. ríkisári konungs, og er því að líkindum sama samkvæmið, sein Herodót segir frá. Sami ritliöfundr gotr jress og, að þá er Xerxes á 7. ári konungdœmis síns koin frá Grikklandi eftir hinn hraklega ósigr, þá hafi hann leitað hugbótar og harmaléttis í kvennabúri sínu. Og kemr jretta heim við það, sem stendr í 2. kap. Estersbókar, því í 8. v, segir, að safnað hafi verið saman mörgum ungum meyjum á konungsgarðinn Súsan, og þar á rneðal Ester, og í 16. v., að þetta hafi gjörzt á 7. ári ríkisstjórnar konungs. Allt þetta sýnir og sannar hér um bil ómótmælanlega, að Ahasverus i Estersbók er enginn annar en Xerxes, hinn grimmi og sællífi harðstjóri, sem ætlaði sór að gjöra út af við hina fámennu frelsisþjóð Grikkja, en varð frá að hverfa með snián og ógrlegásta tjón. Hver fœrt hatí Estersbólc í letr er með öllu ókunnugt, eins það, hve nær hún hafi rituð verið. En hinum sögulegu sannind- um þessarar bókar er alls eigi þar með haggað. Púrimshátíðin er

x

Sameiningin

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.