Sameiningin

Árgangur

Sameiningin - 01.11.1887, Blaðsíða 11

Sameiningin - 01.11.1887, Blaðsíða 11
-139— y. RÉTTINDI. 1. Söfnuðrinn helir vald bil aö skera úr og skipa fyrir í ölluni safnaðarmálum. Afl ræðr úrslitum á fundum. 2. Fermdir safnaðarliinir hafa málfreisi á fundum safn- aðarins. þeir, sem eru átján ára að aldri og upp fylla skyldur þær, sem til eru teknar í IV, 1, hafa atkvæðisrétt, en kjörgengi að eins þeir, sem eru tuttugu og eins árs. VI. EMBÆTTISMENN. 1. Embættismenn safnaðarins eru, auk prestsins, fimin full- trúar (tíoard of Trvbst.ees). Fulltrúarnir kjósa forseta, skrifara og féhirði úr sínum floklci. Auk þeirra skulu kosnir tveir djáknar samkvæmt XII, 1, og tveir endrskoðunarmenn. 2. Söfnuðrinn ræðr einungis þann fyrir prest, sem tekið hefir próf í guðfrœði, er vígðr í hinni lútersku kirkju, er rétti- lega kallaðr, kunnr að kristilegri hegðan, játast undir sömu trú og söfnuðrinn og ritar nafn sitt undir safnaðarlög þessi. 3. Söínuðrinn kýs prest á löglega boðuðum safnaðarfundi. Til þess prestr sé löglega kjörinn, verðr hann að hljóta þrjá fjórðu atkvæða á fundi. þó þarf kosning hans að hafa verið borin upp og rœdd á næsta fundi á undan. 4 þegar prestr er ráðinn samkvæmt VI, 2-3, getr söfnuðrinn ekki vikið honum úr embætti, nema hann gjöri sig sekan í ósœmilegu líferni, kenni gagnstœtt játning safnaðarins, sé hirðu- laus í embætti sínu, þrátt fyrir vinsamlegar áminningar safn- aðarins.—Prestrinn getr lagt niðr embætti sitt innan safnað- arins með tólf mánaða fyrirvara. Hið sama gildir, ef söfnuðr- inn vill segja presti upp þjónustu hans. VII. SKYLDUR EMBÆTTISMANNA. 1. Prestrinn hefir sömu störf á hendi og prestar almennt gegna í hinni lútersku kirkju. 2. Fulltrúarnir hafa á hendi framkvæmdarvald safnaðar- ins. Forseti kveðr til nefnda- og safnaðarfunda, þegar þörf þyk- ■r, og stýrir þeim. Skrifari hefir á hendi ritstörf safnaðarins. Féhirðirinn heimtir fjárframlög safnaðarins og varðveitir þau. Greiðir hann fé af hendi samkvæmt ráðstöfun fulltrúanna.

x

Sameiningin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.