Sameiningin

Volume

Sameiningin - 01.11.1887, Page 12

Sameiningin - 01.11.1887, Page 12
140— Hann skal og skyldr til að halda reikning yfir gjöld og tekj- ur safnaðarins. 3. Djáknarnir aðstoða prestinn í embættisfœrslu hans, sér í lagi í því að efla og glœða siðgœði og sanna kristni í söfnuðinum, og yfir höfuð hjálpa prestinum til að stýra hinum andlegu málefnum safnaðarins. 4. Yfirskoðunarmennirnir skulu halda fund með fulltrúum og féhirði safnaðarins tveim dögum fyrir hvern ársfund, til að yfir líta alla reikninga safnaðarins og leggja fram álit sitt á ársfundinum. 5. Allir þessir embættismenn bera ábyrgð fyrir söfnuðinum. VIII. BROT. Brjóti einhver lög safnaðarins eðr óvirði liann með breytni sinni, varðar það útrekstri, láti hann sér ekki segjast fyrir vin- samlegar áminningar, og söfnuðrinn í einu hljóði tínni hann sekan við þessa grein. IX. UM AÐ GANGA ÚR SÖFNUÐI. Ef einhver vill ganga úr söfnuðinum, gefi hann það til kynna á almennum safnaðarfundi, eða tillcynni það bréfiega prestinum eða safnaðarfulltrúunum og skýri frá ástœðum fyr- ir því. En um leið missir hann öll réttindi og tilkall til eigna safnaðarins. Skyldr er hann þó að greiða af hendi allt það fé, sem hann hefir lofað í þarfir safnaðarins fyrir hið yfir standanda ár. X. GJÖLD. Söfnuðrinn skuidbindr sig til að greiða prestinum á á kveðn- um gjalddaga laun þau, sem honum og prestinum semr um, sömuleiðis þann skerf, er honum ber að greiða til kirkjufélags- þarfa, samkvæmt 14. gr. kirkjufélagslaganna. XI. EIGNIR. Eign þessa safnaðar getr ekki gengið í annarra hendr, nema söfnuðrinn á kveði það með tveimr þriðju allra atkvæða. Sundr- ist söfnuðrinn, heldr sá hluti hans eigninni, sem heldr fast við þessi safnaðarlög.

x

Sameiningin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.