Sameiningin - 01.03.1888, Blaðsíða 19
—15
i'irræðis, að ganga út úr kirkjufélaginu. Ekki nærri því allir
söfnuðir, sem andstœðir eru Missouristefnunni svo kölluðu, eru
þó úr gengnir, og ekki nema fáeinir prestar Tala hinna úr
gengnu safnaða sagði „Lutheranererí', kirkjublað Konferenzunn-
ar norsku, nýlega væri orðin 80. Seinna skýrir sama blað frá,
að í „Lutherske Vidneshyrd" sem Anti-Missourimenn gefa út, sé
skýrsla urn þessa úr gengnu söfnuði, og sé þar 57 slíkir tald-
ir upp með samtals nærri því 24 þúsundum sálna, en að skýrslan
sé þá ekki öll komin.
----Á prestaskólanum í Reykjavík eru í vetr ‘23 stúdentar,
14 í eldri deildinni og !) í binni.
----Hinn frægi enski prédikari Spurgeon í Lundúnum lieíir
staðið í kirkjufélagi Baptistaflokksins, en nú befir bann nýl?ga
sagt sig úr þeim félagsskap, og heflr liann opinberlega lýst yfir
því. að það, sem knúði bann til þessa, væri það, að Bapt-
istakirkjan léti kennimönnum sínum haldast uppi, þá er þeim
byði svo við að borfa, að bera svo marga óevangeliska lærdóma
fram og gefa þá út fyrir kristindóm. það befir verið reynt til
að koma bonum aftr inn í sína fyr verandi kirkjudeild, en allt
til ónýtis. Iíann stendr nú óháðr öllum kirkjuflokkum.en beldr
þó eftir sem áðr áfram að bafa fjölrr.ennari áheyrendabóp beldr
en líklega nokkur annar kristinn kennimaðr í heimi.
----->-• — ——<--------->»»
3.
4.
.).
Lexíur fyrir sunnutlagsskólann ; annar ársfjórðungr 1888.
iexía, sd. 1. Apr :
lexía, sd. 8. Apr.:
lexía, sd. 15. Apr.:
lexía, sd. 22. Apr.:
lexía, sd. 20. Apr.:
Brúðkaupsveizlan......(Matt. 22,
1-14).
Síðasta aðvörun frá Kristi (Matt.
23, 27-39).
Að vera vakandi .... (Matt. 24,
42-51).
Hinar tíu ineyjar (Matt. 25, 1-13).
Pundin........(Matt. 25, 14-30).
»» -
—Myndina „Kristr frammi fyrir Pílatusi" er enn að fá hjá
ritstjóra „Sam.“ með sama verði og áðr—1 doll., sömuleiðis bibl-
íuna íslenzku frá brezka biblíufélaginu fyrir @3.40 og nýja
testamentið fyrir 60 cent.