Sameiningin - 01.04.1889, Síða 2
—18—
vel á annani eins eymdaröld, að því er ytra hag þjóör-
innar snerti, eins og 17. öldinni. Sá andlegi lífsstraumr.
sem rann inn í Island með lútersku kirkjunni, gjörði það
að verkum, að þjóðin gat enn haldið all-miklu af sínum
forna lieiðrí, — staðið öðrum þjóðum jafnfœtis í andlegu
tilliti. það var sérstakt happ fyrir vora fámennu þjóð,
að ]'að var einmitt l.úterska kirkjan, sein náði sér
niðri á Islandi við siðáskiptin, en ekki hin svo kall-
aða refonneraða kirkja. Auðvitað stóð það ekki til,
að nein önnur kirkja en hin lúterska legði landslýðinn á
Islandi undir sig, því landið stóð ekki í neinu sambandi
við önnur lönd þá en þau, sem það ávallt hefir næst stað-
ið, og í þeim löndum hafði tómr Lúterdómr orðið ofan á.
En maðr gæti samt ímyndað sér, að rás viðburðanna hefði
verið önnur en hún var, þannig t. a. m., að Islendingar
liefði fengiö sína trúarbót frá þeim löndum, þar sem kal-
vínskr lærdómr varð ráðandi í kirkjunni. Og þá gæti
maðr spurt, hvort hið andlega líf Islendinga myndi liafa
orðið nokkuð verulega öðruvísi, hefði kirkjan þeirra orðið
reformeruð kirkja, heldr en það hefir oröið fyrir það, að
þeir hafa staðið í lútersku kirkjunni. Vér höfum áðr hér
í „Sam.“ minnt á, að rnesta monntaland heimsins er viðr-
kcnnt að vera hið lúterska þýzkaland. Og vér höfum það
fyrir satt, að þjóð vor á lútersku kirkjunni það að þakka,
að liún hetir þó ekki staðið og stendr ekki neðar en hún
gjörir í andlegu t’lliti. Hefði trúarbót reformeruðu kirkj-
unnar orðið innleidd meðal Islendinga í staðinn fyrir hina
lútersku trúarbót, þá myndi að mun lakar liafa farið fyr-
ir ]æiin andlega og upplýsingarlega heldr en farið hefir.
það er eitt einkennilegt við reformeruðu kirkjuna í
samanburði við hina lútersku kirkju. Hún hefir, eftir því
sem tímarnir liðu, öll liðazt sundr í nærri því óteljandi
stœrri og minni trúarflokka, þar sem lúterska kirkjan hef-
ir allt til þessa dags haldið sér eins og ein sterklega sam-
vaxin, ósundrslitin og ósundrslítandi heild. Biskuplega kirkj-
an enska, presbyteríanska kirkjan, Baptistar, Heþodistar,
Kongregazíónalistar eru nöfnin á stórflokkunum, sem re-
formeraða kirkjan hefir sundr liðazt í. Lúterska kirkjan