Sameiningin

Årgang

Sameiningin - 01.12.1889, Side 10

Sameiningin - 01.12.1889, Side 10
—170— vinum á allar liliðav; þeir hugsa að eins um aS eySileggja yíirráS hans. En Jehóva veitir honum hlutdeild í yfirráS- um sínum yfir heiminum og leggur alla óvini fyrir fætur honum. Hann á aS framkvæma hinn mikla dóm Jehóva yfir öllum óguðleik heiSingjanna. Hann mun „sundurmola höfuS margra landa“, hann mun „fylla meS líkum“ í kring- um sig og Jehóva, sem er honum til hægri handar, mun „sundurmerja konungana á degi sinnar reiði“. En hardag- inn gegn hinum lieiSna beim mun ekki líkjast leik, eins og menn ef til vill kynnu að ætla samkvæmt 2. sálmin- um. Mótstaða óvinarins mun verða hörð, og þreyttur af hinum blóðuga bardaga mun Messías á orustudeginum hljóta að „drekka af læknum" til þess aptur aS geta „lypt upp höfði“ sínu með sigursæluin lcrapti. þetta eru reyndar hin fyrstu augljósu orð, sem vjer heyrum um það, að Messías eigi í raun og veru að líða eitthvað þungbært, frá því að talað var uin, að ormurinn skyldi „bita í hælinn á sæði konunnar". En að öðru leyti var það auðskiliS, að eins og hinar miklu sigurvinningar Davíðs ekki voru unn- ar án erfiðismuna, Jiannig átti Messías heldur ekki aS fá sínar sigurvinningar án þess að leggja neitt í sölurnar. Hann átti aS vera 'nin ómótstæöilega hetja, af því að Je- hóva ætlaði að vera með honum, og vera honum enn þá nær, en hann hafði verið Davíð. En hjálp Jehóva er ekki þannig, að skjólstæðingar hans megi leggja hendurnar í skautið. Og Messías átti að þurfa að neyta allrar hreysti sinnar, til að framkvæma hið mikla verk, er honum var á hendur falið. það er eitt atriði í þessum 110. sálmi, sem er alveg sjerstaldega einkennilegt. Messías á elcki að eins að vera ko n un gur. Hann á einnig að vera p r e s t u r. Presta- konungur á liann að vera, eins og hinn mikli Melki- sedek, er öldungurinn Abraham hafði beygt sig fyrir. — Ekkert var harðlegar bannað konungi Israelsmanna en það að vera bæði prestur og konungur. Sál var varpað frá augliti guðs, af því að liann hafði viljaö rífa undir sig hið prestlega vald. Og cinn af hinum seinni konungum, er reyndi að gjöra hið sama, var sleginn af Jehóva og

x

Sameiningin

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.