Sameiningin

Árgangur

Sameiningin - 01.01.1891, Síða 3

Sameiningin - 01.01.1891, Síða 3
—163— er ekki nein ímynduð ínynd af nokkru, sem ekki er til, heldr eftirmynd af því, sem hver trúaðr kristinn maðr reynir í hvert skifti sem hann upp frá neyð sinni og raunum sínum snýr sálu sinni biðjandi til hins almáttuga í Jesú nafni. Sálminn: „í fornöld á jörðu var frœkorni sáð“ liöfum vér nú sungið eða látið syngja í þessi 4—5 ár síðan sálmabókin kom út oftar en noklcurn annan sálm, en allt af hefir oss verið að finnast meira os meira til o um ágæti hans. Sama er að segja um sálminn: „það er svo oft í dauðans skugga dölum“. Og þá er sálmrinn: „Sú bezta dögg, sem drottinn“ sá lang-fegrsti og mesti skírn- arsálmr, sem vér enn höfum séð á nokkurri tungu. það er aðallega fyrir hina mörgu ágætis-sálma eftir séra Valde- mar Briem, að hin nýja sálmabók vor hefir á þessum fáu árum náð að verða annað eins uppáhald meðal almennings safnaða vorra, eins og hún er þegar orðin. })að er hann á undan öllum öðrum, sem hefir lyffc sálmaskáldskapnum íslenzka svo hátt, að hann þolir nú fullkomlega saman- bui-ð við það, sem bezt er í hinurn veraldlega skáldskap- þjóðar vorrar. það þolist nú naumast lengr fyrir neinn ís- lenzkan skáldskaparfrœðing að gefa yfirlit yfir íslenzk skáld- verk almennt og ganga þegjandi fram hjá sálmaskáldskapnum. Islenzkr sálmaskáldskapr er nú hafinn til nýrrar tignar, og það á þjóðin lang-mest séra Valdemar að þakka. Hann hefir nálega alls ekki átt við neina aðra skáldskaparteg- und en hina trúarlegu, kristilegu. En gegn um hana er hann orðinn éitthvert fremsta íslenzka þjóðskáldið á þess- ari öld. því þessi maðr, séra Valdemar Briem, hefir þegar í þessari skáldskapar-tegund leyst miklu meira verk af hendi en það, sem eftir liann liggr í sálmabókinni, og þau sár- fáu trúarljóð, er enn hafa annars staðar birzt eftir liann ú prenti. Hann hefir orkt feyki-mikið safn af andlegum ijóðurn út af útvöldum köflum í öllum bókum heilagrar ritningar. All-mikinn liluta ijóða þessara höfum vér verið svo heppnir að sjá, enda þótt það sé ekki nema tiltölu- lega lítið brot af þeim, sem vér höfum átt kost á að lesa vandlega. En svo mikið þekkjum vér til þessa víðtœka

x

Sameiningin

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.