Sameiningin

Ukioqatigiit

Sameiningin - 01.01.1891, Qupperneq 7

Sameiningin - 01.01.1891, Qupperneq 7
—167— og höfðingjarnir framast fylki beiddu, að fjandmann þeirra leika skyldi hart; þeir kváðu hann ei konungs boðum hlýða og kongi sjálfum meiri þykjast víst; 02 líkt og síðar lausnarann við blíða þeir lygi’ og vélar spara gjörðu sízt. En konungrinn Daníel hinn dygga ei dœma vildi fyrir þessa sök; hann vildi feginn frelsa þjóninn tryTgga og fœrði honuin mörg til varnar rök; hann sagðist enga sök hjá honum finna og sízt þá neina’, er dauði lægi við. Um drottin Krist svo dómarinn réð inna, gegn dauðanum er hugði’ að veita lið. En höfðingjarnir hærra sífellt létu og heimtuðu af sjóia líflátsdóm; á dugnað konungs hátt og títt þeir hétu, að hremma Daníel í Ijóna klóm. þá Daríus varð undan loks að láta, því líkt og Pílatus hann deigr var, er síðar varð í Jerúsalem játa um Jesúm þvi, er beiddu Gyðingar. Og Daníel var dœmdr sem þeir beiddu til dauða fyrir gritnmra ljóna klóm. })eir kátir hann í ljónagrytju leiddu, að lífláts skyldi’ hann bíða þungan dóm. Og fyrir gröf þeir stórum veltu steini, er stillir sjálfr innsiglaði þar, sein þá er drottinn dýrðarinnar eini í dimmri gröf und steini byrgðr var. })á sólin reis úr hafsins dimma djúpi og dýrðargeislum sló um lönd og höf, gekk Daríus í döprum sorgarhjúpi til Daníels að myrkri Ijónagrcf.

x

Sameiningin

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.