Sameiningin

Árgangur

Sameiningin - 01.07.1891, Síða 12

Sameiningin - 01.07.1891, Síða 12
•76— Vídalíns- „ 6,00 Garðar- „ 25,50 Argyle-söfnuðir 49,25 Gjöf frá Sigrjónu Laxdal 100,00 samtals $ 504,7 5 UmrœSur urSu miklar um málið'. Loks var nefndarálit- ið samþykkt óbreytt, svo og eftir fylgjandi viðaukatillaga frá séra Iíafsteini Pétrssyni og Páli S. Bárdal: Kirkjuþingið telr það sjálfsagða skyldu kirkjuþings- manna, að þeir gangist fyrir söfnun í skólasjóð hver í sínum söfnuði. þeir ætti að fá aðra leiðandi safnaðarmenn í fylgi með sér og vinna að söfnuninni eins vel og fljótt og auð- ið er. Kirkjuþingið telr og heppilegt, að safna loforðum. fyrir skólasjóðinn bæði í peningum og öðru. þótt skólasjóðrinn sé eign kirkjufélagsius, þá vonar það þó, að allir þeir, sem unna menntun og menning Is- lendinga í landi þessu, styðji þetta velferðarmál þjóðflokks vors með fjárframlögum í skólasjóð. Öll fjárframlög skulu send til forseta kirkjufélagsins. Um kvöldið sama dag (laugardag) fóru fram almenn- ar umrœður út af þýð'ing kirkjufélagsins í menningarlegu tilliii fyrir fólk vort. Séra Jón Bjarnason „innleiddi“ það mál með stuttri tölu. Magnús Pálsson stýrði umrœðum þessum. Sunnudaginn 21. Júní var altarisgöngu-guðsþjónusta í kirkjunni fyrir kirkjuþingsmenn og aðra og prédikaði séra Friðrik J. Bergmann. Að kvöldi flutti séra Steingrímr þorláksson, í stað prédikunar, fyrirlestr um guðdóms Jesxis Krists. 7. fundr, mánud. 22. Jan., kl. 9 f. m. Féhirðir Arni Friðriksson lagði fram skýrslu urn fjár- hag félagsins. Eftir nokkrar umrœður var sú skýrsla falin tveim mönnum (Sigtr. Jónassyni og E. H. Bergmann) til yflrskoðunar. Næst var lagt fram álit nefndarinnar í málinu um úr- göngu séra Magnúsar Skaftasens og nokkurra safnaða í Nýja jslandi, svo hljóðanda.

x

Sameiningin

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.