Sameiningin

Ukioqatigiit

Sameiningin - 01.09.1894, Qupperneq 11

Sameiningin - 01.09.1894, Qupperneq 11
—107— þaö kemr fram á þessum staö eins og svo undr víða í bók þessari, að ekki er komið með nema liálfan sannleikann. Skrítið er að sundrliða vitið í þessa sex hœfilegleika: eftir- tekt, hugmyndakraft, skilning, minni, dómgreind, ímyndunar- afl — og taka svo á eftir fram, þá er öllum þessum vit-tegund- um hefir verið lýst: „Sumir bœta hér við skynseminni". Og hvað er svo skynsemin? Svar: Hún er „hœfileikinn til þess að komast út yfir hið skynjanlega og endanlega, til þess að rann- saka alla hluti ofan í kjölinn, komast að talcmarki allra hluta. hoefileikinn til þess að komast út yfir hið verulega, tii þess að mynda hugsjónir“(l). Er ekki þetta svart? A bls. 40. stendr: „í hjarta mannsins er lind lífsíns, en þar er og uppspretta minnisins". þetta um uppsprettu minnisins í hjartanu er víst ekki fullkomlega hálfr sannleikr. það er margt iieira geggjað af því, sem sagt er til þess að gjöra grein fyrir hinum eintöku hœfilegleikum vitsins. Um reikningsnám er tekið fram, að það sé flestu öðru betr fallið til þess að „styrkja og æfa dómgreindina hjá unglinguuum“, og þar við svo tafarlaust þessu bœtt: „Sannleiksást þess, er dóminn fellir, rœðr og miklu um það, hvort dómrinn verðr réttr eða rangr“. það, sem hér er sagt um sannleiksástina kemr þarna— við hliðina á þýðing reikningsnámsins—eins og skollinn úr sauðarleggnum. Rétt ályktan hugsunarinnar eins og í reikn- ingsdœmi á ekkert skylt við það, hvernig menn dœma um það eða það í siðferðislegu tilliti. Um fmyndunaraflið er kennt, að það sé „gáfa sú, er vér setjum saman með orð og atvik, er ann- aðbvort hafa fyrir oss borið í raun og veru, eða þá ekki eru á rökum byggð“, og „kallast þá ímyndunaraflið skapandi“. þetta er hin mesta lokleysa. Ekki er betr gjörð grein fyrir „tilfinningunum" á 43. bls- þar segir svo: „Ef oss er boðið í veizlu, vekr það hjá oss gleði; en hluttaka í veizlunni vekr h já oss kæti. Ef vér aftr á móti setjumst aftr af veizlunni og metum meira að rœkja einhverja helga skyldu, þá vekr það hjá oss hjartanlega ánœgju." Og enn fremr: „Gleðin, sem vaknar, er oss er boðið í veizlu, er kölluð andleg tilfinning; kætin við veizluborðið holdleg tiLfinning, en ámegjan yfir því að meti skylduna meir en veizluna, siðferffis-

x

Sameiningin

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.