Sameiningin

Volume

Sameiningin - 01.09.1894, Page 12

Sameiningin - 01.09.1894, Page 12
—108— leg tilfinning“. þetta allra síðasta má til sanns vegar fœra. Allt hitt er blátt áfram bull. Hæpið er að kenna eins og á bls. 68., að ósannsögli sé stund- um ekki annað en sjúkdómr, þó að læknir, sem sagt er sé nafn- frægr, sé fyrir því borinn. Eða sé eitthvaS satt í því, þá á sá sannleikr alls ekki heima í svona löguðu riti. Hér átti að eins aS vera rœtt um siðferðislega ósannsögli; því nær það ekkiheldr neinni átt að vera að tala um ósannsögli, sem eigi rót sína í of miklu ímyndunarafii. Á bls. 90. er sagt, að börn oa: unslinírar ætti helzt aldrei að heyra frásögur af vondum mönnum. Ef það væri rétt, þá dygði ekki að hafa í biblíusögum þeim, sem börnum eru ætlað- ar, neitt um Kain eða Absalon eða Júdas. Hm aðra eins menn í fornsögum vorum og Mörð Yalgarðsson mætti þá auðvitað ekki heldr frœða þau neitt. Á 119. bls. er minnzt á metorðagirndina osr tekið fram, að hún veki viljann og kappið hjá ungum og gömlum, enda sé þetta ráð oft notað við börn og unglinga. Engin athugasemd er við þetta gjörð, heldr þvert á móti gengið út frá því svo sem nokkru sjálfsögðu: „Fermingarbörnunum er raðað eftir því hvernig þau eru að sér; skólabörnunum sömuleiSis." Yeit þá ekki höfundrinn eða þýðandinn, að svona löguð niðrröðun er nú sem óðast að leggjast niðr, og aS minnsta kosti í sambandi við íerminguna af flestum dœmd algjörlega óhafandi. A 98. bls. stendr: „Ef illa fer (nl. fyrir börnunum), er það foreldrunum hin mesta og bezta huggun, að vita með sjálfum sér, að þau hafa gjört allt, sem í þeirra valdi stóð, til þess að at- stýra ógæfunni.“ Skyldi þetta virkilega vera sögulega og sál- arfrœðislega rétt? Skyldi samvizkusömum foreldium nokkurn tíma finnast þeir hafl gjört alit, sem í þeirra valdi stóð, til þess að leiða börnin sín á veg gæfunnar? Um einstöku óviðkunnanleg orð eSa orðatiltœki, sem fyrir koma í bókinni, er ekki vert aS tala. Taka má þó fram, að í svona lagaðri bók er of óvirðulegt að tnla um „stráka og stelp- ur“ (bls. 31. og víðar). Og þar sem haft er eftir fólki (á bls. 23.), aS það sé á mannfundum að rœða um annað ems og „geld- ingarstrenginn" í folunum", þá er slíkt alveg óþolanda. Vér erum dauðhræddir um, að bók, sein úir og grúir af við-

x

Sameiningin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.