Sameiningin

Árgangur

Sameiningin - 01.01.1896, Blaðsíða 10

Sameiningin - 01.01.1896, Blaðsíða 10
170— innar“. í Dakota fást þau hjá ritstjóranum sóra FriSrik á Garðar og séra Jónasi A. Sigurðssyni á Akra, og í Minnesota hjá séra Birni B. Jónssyni í Minneota. Hér nyrðra (í Manitoba) eru þau enn fretnr að fá hjá hr. Jóni Björnssyni á Baldr og hr. Bjarna Marteinssyni við íslendingatijót. Ágóðinn af sölu ritsins gengr eins og að undanförnu í o o o o skólasjóð kirkjufélagsins. Einn sunniulagr á íslandi. (En sönclag paa Island) heitir ritgjörð ein, sem nýlega er komin út í „For Kirlce og Kultur", tímariti þeirra Chr. Bruuns og Th- Klaveness í Kristjaníu. Höf. cr S. Holst Jensen, norskr prestr, sem skrapp upp til íslands í hitt hið fyrra sumar. Og segir hann í ritgjörð þessari frá því, sem bar fyrir augu hans og eyru einn sunnudag uppi á íslandi, og hugleiðingum sínuin út af því. það var sunnudaginn 8. eftir trínitatis, 24. Júlí, 1893. Hann var þá í allra beíita veðri staddr í Laugardalnutn hjá Geysi, sem honum þó ekki auðnaðist að sjá í sinni dýrð, og fékk þá tœki- fœri til að vera við kirkju í Haukadal hjá séra Magnúsi Helga- syni. Jensen prestr lýsir náttúrunni íslenzku prýðilega vel og hefir hún augsýnilega haft á hann ali-mikil áhrif. TJm fólkið talar hann mjög hlýlcga og virðulega. Hann fer og all-mikið ir.n í bókmenntir íslands á síðari tímum, einkum að því leyti. sem þær snerta kirkjuna og kristindóminn. Sérstaklega segir hann vol og vandlega frá sálmabókinni frá 1886 og sálmaskáld- skapnum íslenzka yfir höfuð. Að því, er sáimaskáldskap fyrri alda snertir, hefir hann mest af fróðleik sinum fengið úr ritum þeirra dr. Jóns þorkelssonar í Kaupmannahöfn („Digtuingen paa Island i det löde og 16dc aarhundrede“) ogCarl Rosenbergs (..Nordboernes aandsliv“), og síterar hann langa klausn eftir hinn síðar nofnda um Hallgrím Pétrsson og passíusálmana, scm 1 klega er það bezta. sem nokkurn tíma hefir á öðrum tungum en íslenzku verið sagt um það mál. Uin biblíu-útleggingarnar islenzku flytr höfundr ritgjörðarinnar einnig all-langt erindi. En þar er sá slæmi hængr á, að hann tekr það nálega algjörlega eftir dr. Guðbrandi Vigfússyni, sem þrátt fyrir allt sitt ágæti og sína miklu þekking á sögu og bókmenntum íslands leit svo

x

Sameiningin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.