Sameiningin

Árgangur

Sameiningin - 01.01.1896, Blaðsíða 12

Sameiningin - 01.01.1896, Blaðsíða 12
—172 æfa á her fjandmannanna, sem ekkert grunaði. þeir Kedorla- ómer ímynda sér að sjálfsögðu, að fjölmennr her sœki að þeim rír öllum áttum. Og tekst Abraham með bragði þessu að reka her Kedorlaómers á fiótta og ná Lot aftr og nokkrum hluta hins hertekna lýðs ásamt með fjármunum þeim, er þar með fylgdu. þessi frásaga um herför Kedorlaómers hefir verið dœmd æfintýri eitt, með því að talið var sjálfsagt, að óhugsanlegt væri, að gjörð hefði verið herför til lands, er lá svo fjarri stöðvuin þeim, er leiðangrinn var sagðr að hafa verið gjörðr frá, svo snemma á tímum og þá er Abraham var uppi. Saga þessi var og vefengd fyrir þá sök, að sagt er, að forkólfr leiðangrs þessa, Kedorlaómer konungr í Elam, haíi átt heiina svo langt í burtu. Maðrinn, sem stóð fyrir herför þessari, hefði þó vissulega ekki getað hafa átt heima lengra burtu en í Babýlon. þannig hugsuðu menn. En rannsóknir síðustu tíma hafa leitt í ijós, að eigi tjáir framar í nafni vísindanna að halda því fram, að ótrúlegt sé, að gjörð hafi verið herför frá Elam eða Babýloníu svo langt vestr, eða að fyrir því sé engar áreiðanlegar sannanir. Eigi dugir lieldr framar að halda því fram, að frásögnin öll sé bergmál af sögunni um hinar sýrlenzku herfarir á dögum Tiglat-Pílesers eða herför Assýra á dögum Sankeribs. það tjáir eigi héðan af að slengja því út, að nöfn hinna fimm kanversku konunga sanni málfrreðislega (það er að segja samkvæmt þýðing þeirra og upp- runa), að saga þessi sé æfintýri. Austrlenzk fornfrœði hefir á inerkilegan liátt orðið frásögn bibbunnar til staðfestingar. Af steinspjöldunum, sem grafin hafa verið úr jörðu i Tel-el-Amarna, er auðsætt, að Sýrland og Kanaansland hetir orðið fyrir áhrifum frá Babýloníu löngu fyrir burtför ísraelsmanna úr Egyptalandi. Afar snemma á tímum hafa herfarir verið gjörðar frá Babýloníu til suðrhluta Kanaanslands. Og á þeim tíina, er hinir svo köliuðu „hyksos“ eða hjarðmanna-konungar voru flæmdir út úr Nílárdalnum, höfðu Babýloníumenn náð sér niðr á ströndum Miðjarðarhafsins. það hafa meira að segja í Babýlon sjálfri fundizt vitnis- burðir um þessar sigrvinni.igar þar vestra svo snemma á tíðum. Sargon frá Akkad (sem auðvitað var allt annar maðr en Sargon

x

Sameiningin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.