Sameiningin

Volume

Sameiningin - 01.01.1896, Page 13

Sameiningin - 01.01.1896, Page 13
—173 hinn mikli Assýra-konungr, er seinna var uppi), sá, er setti hi5 fyrsta ríki meðal Sems-niðja á stofn og enn fremr eitthvert hið frægasta bókasafn í Kaklealandi, ruddi sér með vopnum veg vestr að Miðjarðarhati. Fjórum sinnumbrauzt hann inn í „land Amón'ta“. Jafnvel eyjan Kípr virðist hafa lotið konungdœmi hans. Sonr hans Naram-Sín fór herför til Magan, sem er sama sem land Midíans-manna á skaga þeim 1 Arabíu norðvestan- verðri, sem kenndr er við Sínaí-fjall, og hélt hann sömu leið þangað frá Sýrlandi, sera Kedorlaómer og bandamenn hans fóru. Munrinn á þeim tveim herförum var að eins sá, að Kedorlaómer beygði af liér um bil á iniðri leið. Babýlóníumenn þekktu þannig veg þennan, setn Edómsbúar löngu löngu seinna lokuðu fyrir ísraelsmönnum, er þeir voru á leiðinni frá Egyptalandi til Kanaans. En enn þá meira þessu efni viövíkjanda ltefir verið í ljós leitt; því á steintöblum frá döguin Babýlontukonungs þess, er nefndr er Erí-Akú (þjónn mána-guðsins), stendr skráð, að Kúdúr-Mabúg faðir hans liafi verið „faðir Amóríta-landsins“, það er að segja: drottnað yfir Amórítum í Kanaanslandi, sem samkvæmt því, er í biblíunni segir, lieyrði til þjóðfiokkum þeim, er biðu ósigr fyrir Kedorlaómer. Kúdúr-Mabúg var af þjóð Elamíta, og merkir orð þetta á þeirrar þjóðar tungu „þjónn Mabúgs“; en Mabúg var einn af guðurn Elamíta. Alveg eins er nú myndað’ nafnið Kedorlaómer, sem er hebresk útgáfa af nafni þvf, er á tungu Elamíta hefði átt að vera Kúdúr-Lagamar (þ. e.: þjónn Lagamars). Lagamar var nefnilega einn af liinum merkustu guSum Elamíta. Erí-Akú sjálfr var konungr í Larsa. Babýlónia var nefni- lega ekki eitt ríki á þeirri tíð. Larsa var höfuðstaðr í nokkrum hluta Babýloníu, Babýlon í öðrum hluta, og að öllum líkindum var syðsta héraðið, Súmer eða „Sínear“, sérstakt konungsríki. Aðr en Erí-Akú andaðist varðþó ríkjaskipan þessari kollvarpað. Khammúrabí, konungi í Babýlon, tókst að vinna sigr á hinum babýlonsku keppinautum sínum og gjöra Babýloníu að einu ríki. Erí-Akú konungi í Larsa var steypt frá völdum, þráttfyrir hjálp þá, sein hann fékk frá Elam, og með því var yíirdrottnan Elamíta kollvarpað. Upp frá jiessu varð Babýlon miðpunktr j'ikisias.

x

Sameiningin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.