Sameiningin

Árgangur

Sameiningin - 01.12.1896, Blaðsíða 6

Sameiningin - 01.12.1896, Blaðsíða 6
GuS langar til a5 fá kveykt ljfisið þaS arna í hjörtum vor allra; því hann vill, aS vér höldum jól; en jól er oss ekki unnt að halda nema hjörtun sá lýst upp af jólaljósinu og í guði glöS fyrir fullvissuna þá, að hann sé hinn elskulegi, líknarfulli faðir vor á himnum og vér börnin hans fyrir jólabarnið blessaða. það er engin hátíð í því húsi, þar sem bæði er dimmt og kalt; heldr ekki í hjarta þínu, ef bæði er dimmt og kalt í þvi; en ef hjartað er hátíðarlaust, þá heldr þú enga jólahátíð. þess vegna skaltu láta hjartað þitt opnast vel fyrir jólaboðskapnum. þá verðr bjart og hlýtt í því; því þá koma jólin inn til þín með ljósið sitt og ylinn sinn. Reyndu svo að kveykja ljós í hjarta einhvers, sem skortir jólaljós og jólayl. Já, gjörðu það. þá heldrðu jól. Til manntals. Eftir séra Jönas A. Sigvrdsso.x. ,Fóru þá allir tii manntals, hver til sinnar horgar‘, (Lúk. 2,3.). þegar Agústus keisari forðum boðar til manntals og skatt- skriftar um allan heim, þá hlýða því allir. þeir fara allir, Gyðingarnir, hvernig sem hinar ytri ástœð ur þeirra voru, eins og þau Jósef og María, hver til sinnur borgar. þessi skattskrift hafði erviðismuni og útlát í for ineð sér. þeim getr ekki dulizt það, En samt hlýða þeir skipan keisara síns—allir, segir textinri. Hér koma ekki til greina neinar afsakanir né ómögu- legleikar. En svo gengr út annað boð samtímis boðskap Ágústusar keisara. það skal tekið inanntal í öðrum skilningi, ekki ein- ungis um hið rómverska ríkið, heldr, svo orð guðspjallsins rœtist bókstaflega, manntal um allan heitn. Sá boðskapr er S'mdr öllum samhliða boðskap Ágústusar um manntalið þetta á Gyðingalandi, að annað manntal skuli tekið og önnur skatt- skrift sé nauðsynleg. Mönnunum öllum er boðið að taka sig upp þaðan sem þeir áðr dvöldu og fara hver til sinnar borgar. Konungr konunganna gefr út þá skipan. Erindsreki hans er hinn blessaði heimsfrelsari Jesús Kristr, en enginn hinna

x

Sameiningin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.