Sameiningin - 01.12.1896, Síða 7
151—
rómversku ofbeldismanna. Hann lcemr til a5 taka manntal,
í andlfgum skilningi, til að safna mönnum saman kristilega
og trúarlega—öllum mönnum, og hann kemr til að losa þá
undan skattskrift heimsins, ánauðaroki synda og lasta. Hann
kemr til að boða liinum selcu fyrirgefning, hinum sjúku og
vanheilu lækning, hinum þrej'ttu hvfld og umbun, hinum
sorgmœddu harmalétti og huggun, hinum aðskildu ástvinum
sambúð um alla eilífð, hinum framliðnu upprisu og lif. Yið
komu Krists fær heimrinn nýtt útlit. Kærleikrinn, hið helg-
asta ati mannshjartans, fær nýja stefnu, er ekki lengr éinungis
heimslegr og holdlegr, heldr guði fœddr og eilífr. Mannúðar-
kenningar, sem ekki voru áðr til, eru nú íluttar. Mœðrnar
varpa ekki framar afkvæmum sfnum fyrir óaiga dýr merkr-
innar—eða syndarinnar, heldr helga þau Jesú. Hinum sjúku
er hjálpað eftir megni. Hinir aldrhnignu og allslausu eru ekki
látnir einir og yfirgefnir. Hinurn t'áfróðu er kennt. Iíinum
villuráfandi leiðbeint. Boðskaprinn, sem heyrðist á undan
fœðing Jesú var : Hann skal f r e 1 s a. Boðskaprinn, er fylgir
honum við fœðinguna, er : „Óttizt ekki, því eg fiyt yðr mikinn
fögnuð, sem veitast mun öllu fólki; því í dag er yðr frels-
ari fœddr“. Boðskapr hans sjátfs er : „Eg ern kominn til að
leita hins týnda og glataða og frelsa það. „Og et'tir hérvist
Jesú kenndi Páll frá Tarsus : „það er sannr lærdómr og í alla
staði viðtöku maklegr: að Jesús Kristr er kominn i heiminn til
að frelsa synduga menn“. Andi hinnar manrdegu löggjafar
finnst hér ekki; kröfur hinna eigingjörnu heimsdrottna eru
)iér fjarverandi. það er engin skattskrift í þágu sltkra kónunga,
er hann flytr. En það er fagnaðarerindi jólanna og Jesú Krists.
það er guðlegt evangelíum oss syndugum mönnum. það er
boðskapr til hins skelfda og undirokaða mannkyns um að
óttast ekki, boðskapr, sem ekki er bundinn við stétt né stöðu,
þjóð né ríki, ár né aldir; hann er fyrir allt fólk, alla menn,
enn þá miklu almennari en manntalsboð Ágústusar, — algjör-
lega undantekningarlaus,
Svo þessi jólaboðskápr er þi til allra, til yðár allra.
Yðr er frelsari fœddr í allri sorg, synd og neyð lífsins. Óttizt
ekkert, fremr en hirðarnir, ef þér hafið Jesúrn. Yðr er frelsari
fœddr—í baráttu hjartna yðar við synd og freisting, í heimilis-