Sameiningin - 01.12.1896, Side 10
•154—
hafði ekki mikil efni; þó keypti hann smágjaiir handa börn-
unum og lítið jólatré. A jólanóttinni kveykti hann svo á
trénu og útbýtti börnunum gjöfunum. Svo las hann í nýja
testamentinu, og faðir og móðir sögðu börnunum sínum frá
Jesú-barninu í jötunni. Og ljósin loguðu skært á trénu, en
skærast logaði jólaljós trúarinnar í hjörtunum.
Hann var gm-iall maðr, og Ijós augna hans var deprað.
Horfið var nú úr lífi hans það, sem honum hafði verið kærast á
jörð. Konan hans var dáin og börnin hans farin. Enn var
kominn vetr og skammdegismyrkr. En svo komu líka blessuð
jólin og Ijósin voru kveykt og börnin sungu. þá var bjart
yfir ásjónu öldungsins. þá sá hann himneska ljósið. þá heyrði
hann jólalofsöng englanna. þá tók hann á ný frelsarann í
fang sér og sagði: „Drottinn, nú lætr þú þjón þinn i friði fara“.
Hann dó og sála hans, sem gengið hafði í jólaljósi guðs
opinberunar í Jesú Kristi hér á jörðu, býr nú í jólaljósi guðs
á himnum.
Engin ljós eru eins björt og jólaljósin. Engin stjarna
lýsir gegn um dauðann og inn til eilífs lífs nema stjarnan
í Betlehem, sem birtist á jólunum.
------>-oC>o-<í-----
Tíðindi úr kirkjufélag'inu.
Eins og td stóð stundar séra Jón Ciemens, prest.r safnað-
anna í Argyle-byggð, Man., áfram haldanda guðfrœðisnám á
prestaskó'anum í Chicago i vetr. Hann lagði á stað þangað
suðr rétt fyrir miðjan Október, kom snöggvast við í Winnipeg
og Minneota á leiðinni, og dvelr væntanlega þar syðra þangað
til skólinn hefir lokið vetrarstarfi. sínu í Maí. — Auk hans er
annar íslendingr þar á skólanum viö guðfrœðisnim, hr. Runólfr
Marteinsson, sem í fyrra var útskrifaðr frá Gustavus Adoiphus
College í St. Peter, Minnesota. Síðan hann útskrifaðist þaðan
hefir liann lengst af starfað að kenn«lu á alþýðu.-ikólum í
Islendinga-byggðinni í Norðr-Dakota. Ásamt þeim séra Júni
J. Ciemens og séra Jónasi A. Sigurðssyni er liann í neffidinni,
sem kosin var á kirkjuþinginu í suinar til þess að hafa með
höndum málið um útbreiðslu lútei’skra bandalaga eða ung-