Sameiningin

Árgangur

Sameiningin - 01.06.1898, Blaðsíða 9

Sameiningin - 01.06.1898, Blaðsíða 9
—57 — á félagið. Og aS þessu leytinu hafa börn kirkjunnar oft og einatt syndgað stórlega. Fyrst hugsum vér þá um öll dauSu börnin, sem til eru innan alh-a kirkjufólaga. þau eru hiS sama íyrir kirkjufélagiS og visnu, þurru greinarnar fyrir tréS ; þær skemma tréS og skaSa það. En fyrir utan hin dauSu börn kirkjufélagsins ber þaS einn- ig í sér ýmsar ólíkar andans stefnur; áhangendr þeirra eru kirkjunni, sem þeir heyra til, vanalega til tjóns og niSrdreps. Látum oss í stuttu máli benda á ýmsar af þeim. í sögu kirkjunnar bæSi á allra-elztu og á síSustu tímum hefir sú andans stefna gjört vart við sig, sem gjörir þá óréttlátu og ómögulegu kröfu til hins jarðneska kirkjufélags, aS í því skuli að eins vera sanntrúaðir menn. þegar nú áhangendr þessarav andans stefnu sjá, að hin sýnilega kirkja hefir í skauti sínu ýmsan óhroða, þykir þeim slík kirkja öld- ungis óhafandi og segja: „Farið út úr Sódóma! YfirgefiS Babel!“ Slíkar raddir létu til sín heyra í fornkirkjunni; þær komu fram aftr á siSabótartímanum, og þær láta til sín heyra þann dag í dag á meðal vor. þaS er ekki nauSsjmlegt að gjöra nákvæma grein fyrir þeim misskilningi, sem felst í þessu. þeir, sem þannig tala, gleyma líking frelsarans um illgresið meSal hveitisins. þeir gleyma líka líkingunni um fiskinetiS, sem safnar allskonar fiskum í sig, góSum og vondum, þegar það er dregið gegnum liafiS. Svo gleyma þeir líka öSru. Drottinn hefir sagt þeim, sem á hann trúa: „þér eruS salt jarSar.“ Ef einhver telr sjálfan sig heyranda saltinu til, breytir hann á móti orðum drottins, þegar hann vill segja skiliS við það, sem hann á aS selca; hvaðan á félagið þá að fá afl til hreinsunar og viðrhalds? Vér eigum hœgt með að skilja, að hjá börnum þessarar andans stefnu fái ekki gagn og Jjýðing kirkjunnar aS njóta sannmælis. Slík andans stefna blæs frá sér megnri óbeit gegn kirkjunni. þaS er leitazt viS aS sá vantrausti og reynt aS fjarlægja hjörtun frá henni. Yér viljum benda á aðra andans stefnu, sem neitar nytsemi þess, að heyra kirkjunni til. AS sönnu ekki vegna þess, hve sýnilegu kirkjunni sé áfátt og ábótavant í mörgu, heldr af

x

Sameiningin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.