Sameiningin

Volume

Sameiningin - 01.11.1900, Page 4

Sameiningin - 01.11.1900, Page 4
i48 náiega ekki verið annað en nafnið tómt. Hér hafi að eins verið um kristnitöku í orði kveðnu að rœða. Menn hafi hald- ið áfram að lifa sem heiðingjar eins eftir sem áðr. Að eins friðarins vegna eða til þess að hafa kristnu mennina— eða þá, er svo kölluðu sig — góða hafi hinir mennirnir látið undan. En dr. Björn Ólsen skýrir þetta mál á allt annan hátt. Hann heldr því fram og fœrir til þess sterk rök, mjög miklar líkur að minnsta kosti, að breytingin, sem varð á stjórnarskipan landsins út af fjórðungaskiftunum og goðorða fyrirkomulag- inu nýja, sem þórðr Gellir fékk í lög Jeitt árið 965, hafi haft það í för með sér, að myndazt hafi í landinu flokkr manna, óánœgðra höfðingja, sem hafi fundizt réttr sinn til hluttöku í landstjórninni vera fyrir borð borinn. þegar kristnin á síð- ustu áratugum aldarinnar tók að ryðja sér til rúms í landinu, þá hafi þessir óánœgðu höfðingjar fyrst til muna farið að láta á sér bera. því auðsætt var þegar undir eins, að hin nýja trú gat ekki með neinu móti samrímzt við hina þá verandi stjórn- arskipan, sem í undirstöðu sinni var fastbundin við heiðnu trúarbrögðin. þessir tveir flokkar, nýkristnuðu mennirnir og hinir óánœgðu höfðingjar, hafi þá eðlilega runnið saman í eitt. Og margir hinna síðar nefndu líka í raun og veru orðið kristnir í hjartans alvöru. Svona lítr dr. Ólsen á, og þetta leitast hann við að sanna með góðum og gildum rökum. Og í aðal-efninu hefir hann víst alveg rétt fyrir sér, hvað sem um einstöku auka-atriði í málsvörn hans kann að mega segja. Samkomulagið frá hálfu heiðingja á alþingi stafar þá af því, að hinn flokkrinn, sem augsýnilega fór óðum vaxandi, var meðfram pólitiskr byltingaflokkr, er hrífa vildi völdin til land- stjórnar til sín, úr höndum andstœðinga sinna. Til þess að afstýra þeirri hættu slaka heiðnu höfðingjarnir til að því, er trúmálin snertir. þeir vilja heldr samþykkja það, að kristnin sé gjörð að landstrú, en eiga það á hættu, að þeir missi hið veraldlega vald sitt, einkum þar sem enginn var með inn- leiðslu hinnar nýju trúar sviftr samvizkufrelsi. En í annan stað slakar flokkr kristnu mannanna eigi síðr til. þeir kasta frá sér öllum þeim kröfum til þólitiskra valda, sem þeir höfðu gengið með í huga sínum að undanförnu. Svo mikið vildu

x

Sameiningin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.